Kristján Þórðarson (Reykjadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Kristján Þórðarson í Reykjadal, sjómaður, útvegsbóndi, verkamaður fæddist 2. júní 1876 í Fíflholtshjáleigu í V-Landeyjum og lést 16. janúar 1966.
Foreldrar hans voru Þórður Þórðarson bóndi, f. 18. september 1844, drukknaði 20. mars 1897 á Músarsundi við Stokkseyri, og Helga Jónsdóttir vinnukona, f. 16. mars 1851, d. 1. janúar 1886.

Kristján var hjá móðurforeldrum sínum í Fíflholtshjáleigu 1880, léttadrengur hjá ekkjunni ömmu sinni í Vestur Fíflholtshjáleigu 1890.
Þau Guðný giftu sig 1902 og fluttust til Eyja úr Reykjavík 1903 með drenginn Guðjón Ingólf.
Þau bjuggu á Bergstöðum 1904 við fæðingu Kristins Magnúsar, í Ási við fæðingu Maríu Þuríðar 1908, við fæðingu Önnu 1910 og enn 1911 við fæðingu Jónu Lovísu.
Þau Guðný reistu Skipholt við Vestmannabraut 1912 og þar fæddist Jóhann Ármann 1915 og Elías 1919.
Þau byggðu Reykjadal 1923 og bjuggu þar síðan.

Kona Kristjáns, (1902), var Guðný Elíasdóttir húsfreyja, f. 28. október 1881, d. 18. júní 1962.
Börn þeirra voru:
1. Guðjón Ingólfur Kristjánsson, f. 31. október 1902 í Reykjavík, d. 7. desember 1984.
2. Kristinn Magnús Kristjánsson verkamaður, f. 7. ágúst 1904 á Bergstöðum, d. 25. nóvember 1962.
3. María Þuríður Kristjánsdóttir, f. 30. apríl 1908 í Ási, d. 21. desember 1992.
4. Anna Magnúsína Þóra Kristjánsdóttir, f. 27. ágúst 1910 í Ási, d. 5. nóvember 1995.
5. Jóna Lovísa Kristjánsdóttir, f. 25. ágúst 1911 í Ási, d. 20. apríl 1912.
6. Jóhann Ármann Kristjánsson matsveinn, vélstjóri, mælaálestrarmaður, f. 29. desember 1915 í Skipholti, d. 6. desember 2002.
7. Einar Elías Kristjánsson, f. 19. febrúar 1919 í Skipholti, d. 4. janúar 2011.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.