Kristinn Karlsson (stöðvarstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. mars 2019 kl. 21:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. mars 2019 kl. 21:46 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Bryndís Sigurðardóttir og Kristinn Karlsson.

Kristinn Karlsson bifvélavirkjameistari, stöðvarstjóri, fæddist 4. október 1936.
Foreldrar hans voru Karl Jónasson rennismiður á Stokkseyri og Eyrarbakka, f. 19. febrúar 1909, d. 15. apríl 1980, og kona hans Aðalheiður Gestsdóttir húsfreyja og verkakona í Smiðshúsi á Stokkseyri og á Eyrarbakka, f. 15. október 1907, d. 8. apríl 1997.

Kristinn nam bifvélavirkjun hjá Hreggviði Jónssyni bifvélavirkjameistara. Hann vann síðan að iðninni í Eyjum til ársins 1979, er hjónin fluttust í Mosfellssveit.
Í byrjun var hann verkstæðisformaður hjá bifvéladeild SÍS í Reykjavík, en vann síðar hjá Frumherja við bifreiðaeftirlit og varð stöðvarstjóri þess fyrirtækis í Grafarvogi.
Þau Bryndís byggðu húsið að Illugagötu 55 og bjuggu þar til ársins 1979.
Þau fluttust að nýju til Eyja 2009 og búa á Búhamri.

Kona Kristins, (26. desember 1960), er Bryndís Sigurðardóttir húsfreyja, f. 22. janúar 1941, d. 8. desember 2018.
Börn þeirra eru:
1. Harpa Kristín Kristinsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1958.
2. Sigurður Kristinsson fagmaður af tölvubraut Tækniskólans, f. 7. desember 1964.
3. Arna Dís Kristinsdóttir húsfreyja, f. 30. júlí 1972.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.