Kristbjörg Einarsdóttir (Málmey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristbjörg Einarsdóttir og börnin Rós, Jón og Einar.

Kristbjörg Einarsdóttir bústýra, húsfreyja fæddist 2. desember 1886 í Málmey á Skagafirði og lést 27. nóvember 1967 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Einar Ásgrímsson bóndi, sjómaður, formaður, f. 29. águst 1834 á Mannskaðahóli á Höfðaströnd í Skagafirði, d. 6. októer 1914 í Ási í Hegranesi, og síðari kona hans Sigurbjörg Magnúsdóttir húsfreyja, síðar á Arnarstöðum í Sléttuhlíð í Skagaf., f. 16. ágúst 1853, d. 29. mars 1922.

Kristbjörg var með foreldrum sínum í Málmey 1890. Þau skildu. Hún var með móður sinni hjá Ágústi hálfbróður sínum á Arnarstöðum 1901.
Kristbjörg var vinnukona í Factorshúsi á Siglufirði 1910.
Hún fluttist að Vilborgarstöðum frá Siglufirði 1911.
Þau Guðmundur og Kristbjörg bjuggu á Hjalla við Vestmannabraut 57 1914 og 1915, á Vestari-Vesturhúsum 1918 og 1919.
Þau voru komin í Málmey við Hásteinsveg 32 1920 með þrem börnum sínum. Þar bjuggu þau síðan.
Guðmundur lést 1953 og Kristbjörg 1967.

Sambúðarmaður Kristbjargar var Guðmundur Jónsson verkamaður, sjómaður, f. 7. febrúar 1875 í Eystri-Móhúsum á Stokkseyri, d. 25. nóvember 1953.
Börn þeirra:
1. Einar Sæmundur Guðmundsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 14. júlí 1914, d. 21. mars 1995.
2. Jón Guðmundsson bifreiðastjóri á Selfossi, f. 15. júlí 1915, d. 26. desember 1994.
3. Árný Rósa Pálína Guðmundsdóttir í Miðey, húsfreyja, f. 15. júní 1918, d. 27. apríl 1974.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.