Kristín Jónsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. mars 2014 kl. 15:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. mars 2014 kl. 15:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Kristín Jónsdóttir''' vinnukona frá Stóra-Gerði fæddist 24. september 1861 og lést 24. maí 1907.<br> Foreldrar hennar voru [[Jón Magnússon (Háagarði...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Jónsdóttir vinnukona frá Stóra-Gerði fæddist 24. september 1861 og lést 24. maí 1907.
Foreldrar hennar voru Jón Magnússon sjávarbóndi í Stóra-Gerði, f. 22. mars 1823, d. 9. nóvember 1907 og kona hans Halldóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. október 1824, d. 3. júlí 1902.

Kristín var með foreldrum sínum í Stóra-Gerði 1870, vinnukona á Gjábakka 1880, vinnukona í Gvendarhúsi 1890, í Dölum 1893, í Gvendarhúsi 1901.
Hún lést 1907.

I. Barnsfaðir Kristínar var Hjálmar Ísaksson, f. 7. september 1860, d. 3. október 1929.
Barn þeirra var
1. Jóhanna Hjálmarsdóttir, f. 23. september 1884, d. 31. maí 1912.

II. Barnsfaðir Kristínar var Jón Jónsson, þá vinnumaður í Dölum hjá foreldrum sínum, f. 15. júlí 1869, d. 4. september 1962.
Barn þeirra var
2. Jóhanna Ástríður Jónsdóttir, f. 3. apríl 1893, d. 7. apríl 1893.


Heimildir