Kristín Einarsdóttir (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Kristín Einarsdóttir vinnukona, síðar húsfreyja Vestanhafs fæddist 6. nóvember 1855 á Loftsölum í Mýrdal og lést 26. október 1891 í Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Einar Jónsson bóndi á Loftsölum, f. 1790, d. 9. júlí 1859 á Loftsölum, og kona hans Kristín Árnadóttir húsfreyja, f. 10. september 1815 í Hrífunesi í Skaftártungu, var á lífi 1873.

Kristín var með foreldrum sínum á Loftsölum til 1859, er faðir hennar lést, síðan með móður sinni þar til 1860 og henni og Jakobi Sigurðssyni stjúpa sínum til 1862.
Hún var með móður sinni á Skagnesi í Mýrdal 1862-1863, í Holti þar frá 1863-1867, er hún fluttist til Vigfúsar bróður síns á Miðhúsum, 12 ára.
Hún ólst síðan upp hjá Vigfúsi og Guðrúnu Guðmundsdóttur næstu árin, var léttastúlka 1870, vinnukona hjá þeim 1872 og 1873, í Helgahjalli 1874-1876, hjá Vigfúsi bróður sínum á Miðhúsum 1877 og 1878, á Löndum 1880 og 1881, en á því ári fluttist hún til Utah.

Kristín giftist 17. nóvember 1881 Vestanhafs Michael Christian Christensen í Spanish Fork, f. 3. júní 1823 í Álaborg í Danmörku, d. 23. september 1893 í Spanish Fork. Foreldrar hans voru Christen Andersen í Álaborg, f. 1783, og kona hans Ane Kierstine Bertelsdatter, f. 1794.
Börn þeirra:
1. Einar Christensen f. 1882 í Spanish Fork í Utah, d. 1965.
2. Hannah Catherine Christensen, f. 1888 í Spanish Fork, d. þar 1975.
3. Mickle Ephraim Christensen, f. 1888 í Spanish Fork, d. 1905.
4. Grace Christensen, f. 1890 í Spanish Fork, d. þar 1890.
5. Christina Christensen, f. í októbver 1891 í Spanish Fork, d. þar 1984.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.