Kristín Ósk Óskarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Ósk Óskarsdóttir frá Hólnum við Landagötu 18, húsfreyja fæddist 14. október 1940.
Foreldrar hennar voru Óskar Ólafsson frá Vestari-Torfastöðum í Fljótshlíð, pípulagningameistari, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, og kona hans Kristín Jónsdóttir frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. þar 9. nóvember 1911, d. 1. nóvember 1992.

Börn Kristínar og Óskars:
1. Adolf Óskarsson pípulagningamaður, afreksmaður í íþróttum, f. 30. nóvember 1928 á Hólnum við Landagötu 18, síðast í Hafnarfirði, d. 15. desember 2008. Kona hans Ásta Vigfúsdóttir.
2. Jóna Guðlaug Óskarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 16. febrúar 1930 á Hólnum við Landagötu 18, d. 15. ágúst 2006. Maður hennar Kristleifur Magnússon.
3. Aðalheiður Óskarsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1934 á Grímsstöðum. Maður hennar Þorleifur Sigurlásson.
4. Guðmunda Eygló Óskarsdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1937 á Hólnum við Landagötu 18. Maður hennar Svavar Steingrímsson.
5. Kristín Ósk Óskarsdóttir húsfreyja, f. 14. október 1940 á Hólnum. Sambúðarmaður hennar Friðbjörn Kristjánsson.
6. Ólafur Óskarsson pípulagningamaður, f. 27. maí 1944 á Hólnum, d. 9. ágúst 1986. Kona hans Harpa Njálsdóttir Andersen.
7. Albína Elísa Óskarsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, glerlistarkona, f. 25. júní 1945 á Hólnum, d. 29. júní 2008. Maður Huginn Sveinbjörnsson.
8. Hrefna Óskarsdóttir húsfreyja, f. 30. apríl 1951 á Sj.h. Maður hennar Kristján Ingólfsson.
9. Örn Óskarsson pípulagningameistari í Reykjavík, f. 18. febrúar 1953 að Boðaslóð 27. Kona Hulda Kjærnested.
10. Guðrún Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1957 að Boðaslóð 27. Maður hennar Almar Hjarðar.

Kristín Ósk var með foreldrum sínum.
Hún var starfsstúlka í Eyjum.
Þau Friðbjörn hófu búskap, eignuðust fjögur börn. Friðbjörn átti lögheimili í Reykjavík, en börnin fæddust í Eyjum nema Óskar. Kristín bjó í Bjarma við Miðstræti 4 um skeið. Þau bjuggu við Hátún 31 í Reykjavík, síðast í Vogatungu 1 í Kópavogi.
Friðbjörn lést 2022.

I. Sambúðarmaður Kristínar Óskar var Friðbjörn Kristjánsson matreiðslumeistari, bryti, f. 27. september 1939, d. 9. febrúar 2022 á Landspítalanum. Foreldrar hans voru Kristján Finnur Jónsson kaupmaður í Reykjavík, f. þar 30. október 1902, d. 29. september 1971, og kona hans Anna Marsilína Sæmundsdóttir húsfreyja, nærfatahönnuður, f. 24. júlí 1908 á Siglufjarðareyri, d. 29. júlí 1955.
Börn þeirra:
1. Anna Friðbjörnsdóttir, f. 2. desember 1957, d. 12. maí 1990 í Eyjum. Fyrrum sambúðarmaður hennar Magnús Gunnarsson.
2. Kristjana Friðbjörnsdóttir, f. 20. ágúst 1959 á Boðaslóð 27 í Eyjum. Maður hennar Páll Garðar Andrésson, látinn.
3. Óskar Friðbjörnsson, f. 23. janúar 1962 í Reykjavík. Kona hans Sigurbára Sigurðardóttir.
4. Hrafn Franklín Friðbjörnsson, f. 8. febrúar 1965 í Eyjum, d. 28. júní 2009. Fyrrum kona hans Ágústa Þóra Johnson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.