Kristín Ólafsdóttir (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 13:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 13:58 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Ólafsdóttir húsfreyja í Stóra-Gerði fæddist 1806 á Kanastöðum í A-Landeyjum og lést 19. júní 1875 í Stóra-Gerði.
Foreldrar hennar voru Ólafur Ormsson bóndi í Stíflu í Breiðabólstaðarsókn í Rang,, f. 1767, og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 1773, d. 6. janúar 1865 í Eyjum.

Kristín var niðursetningur í Berjanesi í Breiðabólstaðarsókn 1816.
Hún var vinnukona á Gjábakka 1842 og 1843, er þau Helgi giftust.
Þau komust að Stóra-Gerði 1843 og bjuggu þar síðan.
Ingibjörg Jónsdóttir ekkja, móðir Kristínar, kom til þeirra 1844, 71 árs. Hún lést hjá þeim 92 ára 1865.
Þau Kristín og Helgi eignuðust 5 börn, misstu 4 þeirra í bernsku, en eitt komst upp, Guðríður húsfreyja í Þorlaugargerði
Kristín lést úr taksótt í júni 1875 og Helgi lést viku síðar úr sama sjúkdómi.

Maður Kristínar, (18. júlí 1843), var Helgi Jónsson bóndi í Stóra-Gerði, f. 5. febrúar 1807, d. 28. júni 1875.
Börn þeirra hér:
1. Guðríður Helgadóttir, f. 9. júlí 1844, d. 7. maí 1851 úr barnaveiki.
2. Halldóra Helgadóttir, f. 17. febrúar 1846, d. 23. febrúar 1846 úr ginklofa.
3. Kristín Helgadóttir, f. 21. mars 1847, d. 27. mars 1847 úr ginklofa.
4. Jón Helgason, f. 26. maí 1848, d. 12. júní 1849 „af Barnaveikin“.
5. Jón Helgason, f. 8. febrúar 1851, d. 25. febrúar 1851 „af Barnaveikin ginklofa“.
6. Kristín Helgadóttir, f. 28. september 1849, d. 4. október 1849 „af Barnaveikindum“.
7. Guðríður Helgadóttir húsfreyja í Þorlaugargerði, f. 31. október 1854, d. 14. júlí 1922.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.