Kristín Ólafsdóttir (Litlakoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Kristín Ólafsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 8. september 1868 í Litlakoti og lést 6. janúar 1944.
Foreldrar hennar voru Ólafur Einarsson sjómaður í Litlakoti, f. 7. október 1836, d. 6. apríl 1916, og kona hans Guðríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 19. mars 1834, d. 25. júlí 1890.

Kristín var með fjölskyldu sinni í Litlakoti 1870 og 1880. Hún var vinnukona hjá Einari Bjarnasyni og Steinvöru Lárusdóttur 1890.

Kristín fór til Austfjarða frá Ofanleiti 1896.
Þau Ágúst giftu sig 1898, eignuðust sex börn, en misstu eitt þeirra. Þau voru á Norðfirði 1898, í húsmennsku á Kolableikseyri við Mjóafjörð eystri 1901-1902 og á Melum þar 1902-1903.
Fjölskyldan flutti til Eyja 1903 og bjó í Vegg við fæðingu Ingibjargar á því ári. Þau bjuggu á Kirkjubæ 1906 með þrem dætrum þeirra, en þau eignuðust og misstu Kristínu Ágústu á því ári.
Þau bjuggu á Kirkjubæ 1910, en Anna Oddný var tökubarn á Breiðabliki hjá Gísla J. Johnsen og Önnu Ásdísi Gísladóttur Johnsen.
Hjónin voru komin í Skálanes 1912 og bjuggu þar með Ingibjörgu og Ágústu, en Anna Oddný var enn í fóstri á Breiðabliki og Petrún var vinnukona á Svalbarði.
Þau bjuggu enn í Skálanesi 1920 með Ingibjörgu og Ágústu, en 1926 með Ingibjörgu og fjölskyldu hennar og einnig 1930.
Ágúst Sigurður lést 1934 og Kristín 1944.

I. Barnsfaðir Kristínar var Guðmundur Jesson verkamaður, f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931.
Barnið var
1. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. maí 1893, d. 24. júní 1984. Hún var kona Stefáns Vilhjálmssonar á Litlu-Grund og í Hábæ, f. 24. ágúst 1890.

II. Maður Kristínar, (1. maí 1898) var Ágúst Sigurður Sveinbjörnsson sjómaður, verkamaður, f. 18. ágúst 1865 á Skálanesi við Seyðisfjörð, d. 22. desember 1934.
Börn þeirra hér:
2. Petrún Ólöf Ágústsdóttir, (nefnd Petrína við jarðsetningu), síðast á Svalbarðseyri við Eyjafjörð, f. 14. maí 1898 á Nesi í Norðfirði, d. 5. mars 1985. Hún eignaðist barn með Þórði Jónssyni á Bergi. Það var Sveinbjörg Alma Þórðardóttir, f. 22. desember 1925, d. 28. mars 1936 af Keflavíkurbrunanum.
3. Anna Oddný Ágústsdóttir Olsen húsfreyja, f. 20. ágúst 1900 í Norðfirði, d. 12. maí 1959, bjó í Reykjavík.
4. Ingibjörg Ágústsdóttir húsfreyja, síðast á Breiðabliki á Svalbarðsströnd, f. 16. desember 1903, d. 10. janúar 1991.
5. Kristín Ágústa Ágústsdóttir, f. 5. september 1906, d. 27. september 1906.
6. Ágústa Kristín Ágústsdóttir húsfreyja, kaupkona, f. 14. september 1908, d. 20. janúar 2004.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Mjófirðingasögur. Vilhjálmur Hjálmarsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1987-1990.
  • Morgunblaðið 30. janúar 2004. Minning Ágústu Kristínar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.