Kornelía Jóhannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kornelía Jóhannsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja fæddist 1. júní 1907 á Ólafsfirði og lést 18. október 1996 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Jóhann Kristinsson frá Grafargerði í Skagafirði, sjómaður, f. þar 25. nóvember 1882, d. 18. desember 1969, og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja, f. þar 25. nóvember 1883, d. 18. mars 1965.

Börn Sigríðar og Jóhanns:
1. Magnúsína Jóhannsdóttir húsfreyja á Siglufirði og í Eyjum, síðast í Reykjavík, f. 22. ágúst 1904, d. 13. júní 1974. Maður hennar Guðjón Helgi Kristjánsson.
2. Kornelía Jóhannsdóttir, f. 1. júní 1907, d. 18. október 1996. Maður hennar Angantýr Einarsson.
3. Kristín Helga Jóhannsdóttir húsfreyja í Ráðagerði, f. 6. júlí 1909, d. 6. janúar 1994. Maður hennar Bjarni Júlíus Ólafsson.
4. Kristinn Júlíus Jóhannsson, f. 18. desember 1911, síðast í Reykjavík, d. 22. febrúar 1986.
5. Jóhann Jóhannsson, f. 1913, lést átta mánaða.
6. Jósefína Marsibil Jóhannsdóttir húsfreyja á Ólafsfirði, f. 12. júní 1914, d. 28. júní 1996. Maður hennar Magnús Guðmundsson.
7. Freymundur Fannberg Jóhannsson sjómaður í Eyjum, f. 14. september 1915, d. 23. október 1996. Kona hans Petrea Guðmundsdóttir.
8. Sigurlína Ása Jóhannsdóttir, f. 14. október 1917, d. 26. febrúar 2008.
9. Guðmundur Gunnólfur Jóhannsson, f. 2. apríl 1920, d. 26. júní 1940.
10. Guðleif Jóhannsdóttir húsfreyja í Hull á Englandi, f. 7. nóvember 1922, d. 19. apríl 2006. Maður hennar Henry Albert Drake múrari.
11. Maggý Helga Jóhannsdóttir, síðast í Kópavogi, f. 26. apríl 1924 á Siglufirði, d. 29. mars 2003. Maður hennar Tómas Jónsson.
12. Gunnar Jóhannsson sjómaður á Siglufirði, f. 8. febrúar 1927 í Reykjavík, d. 23. apríl 2015. Kona hans Valey Jónasdóttir.
Barn Jóhanns:
13. Sigurður Vilhjálmur Jóhannsson sjómaður á Ólafsfirði, f. 13. desember 1902, d. 29. janúar 1978. Kona hans Sigríður Gísladóttir.

Kornelía var með foreldrum sínum í Guðmundarhúsi á Ólafsfirði 1910, var hjú á Skálá í Fellshreppi í Skagafirði 1920.
Hún flutti með foreldrum sínum til Eyja 1930, bjó hjá þeim í Vinaminni á því ári.
Kornelía vann við fiskiðnað og ýmis þjónustustörf.
Þau Angantýr giftu sig 1931, eignuðust sjö börn. Þau bjuggu á Geirseyri í Eyjum við giftingu, á Siglufirði, í Hjarðarholti við Vestmannabraut 69 í Eyjum 1972 og síðast í Reykjavík.
Angantýr lést 1973.
Kornelía dvaldi að síðustu á Hrafnistu í Reykjavík.
Hún lést 1996.

I. Maður Kornelíu, (12. desember 1931), var Angantýr Einarsson sjómaður, f. 6. ágúst 1906, d. 29. febrúar 1973.
Börn þeirra:
1. Sigríður Angantýsdóttir húsfreyja, f. 1. apríl 1932 á Geirseyri. Maður hennar Jón Kjartansson.
2. Þórunn Ólafsdóttir, húsfreyja á Hellulandi í Skagafirði, f. 19. október 1933. Hún varð kjörbarn Ólafs Sigurðssonar, f. 1. nóvember 1885, d. 23. október 1961 og Ragnheiðar Konráðsdóttur, f. 3. október 1892, d. 18. nóvember 1982. Maður hennar Jón Kristinn Björnsson bóndi, látinn.
3. Björgvin Angantýsson sjómaður, raflínumaður, f. 24. apríl 1935, d. 13. janúar 1990. Fyrrum kona hans Hanna Guðrún Ingibergsdóttir.
4. Ragnheiður Ólöf Angantýsdóttir, f. 15. apríl 1937, d. 18. apríl 2015. Maður hennar Sævar Einarsson.
5. Matthías Einar Angantýsson sjómaður í Noregi, f. 15. september 1939, d. 18. júní 1981.
6. Jóhann Angantýsson, f. 26. desember 1940. Kona hans Halldóra Sumarliðadóttir.
7. Aðalheiður Margrét Angantýsdóttir, f. 8. júní 1943, d. 13. júlí 2019.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.