Kolbeinn Sigurjónsson (Hvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kolbeinn Oddur Sigurjónsson sjómaður fæddist 2. september 1932 á Sandfelli á Húsavík og lést 27. maí 2020.
Foreldrar hans voru Sigurjón Halldórsson bifreiðastjóri, verkamaður, vélstjóri, f. 6. mars 1902 á Húsavík, d. 9. desember 1963, og kona hans Elísabet Sigríður Friðriksdóttir frá Gröf, húsfreyja, f. þar 2. október 1905, d. 21. apríl 1985.

Börn Sigríðar og Sigurjóns:
1. Elías Ben Sigurjónsson bifvélavirki í Reykjavík, síðar í Svíþjóð, f. 1. júlí 1927 á Kanastöðum, d. 19. desember 1998. Kona hans Ingibjörg Marsibil Ólafsdóttir.
2. Halldór Friðrik Sigurjónsson tæknimaður í Svíþjóð, f. 19. febrúar 1929 á Kanastöðum, d. 9. júlí 2013. Kona hans Sylvía Anderson.
3. Mary Alberty Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja, f. 20. mars 1930 á Akureyri, d. 3. ágúst 2009. Maður hennar var Jón Frímann Sigvaldason.
4. Benoný Sigurjónsson skipstjóri, býr í Svíþjóð, f. 31. maí 1931. Kona hans Inger Öklund.
5. Kolbeinn Oddur Sigurjónsson sjómaður, f. 12. september 1932, d. 27. maí 2020. Barnsmóðir hans var Rannveig Snót Einarsdóttir. Kona hans, (skildu), var Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal.
6. Kári Rafn Sigurjónsson vélvirki á Hvolsvelli, f. 1. október 1933. Kona hans Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir.
7. Kolbrún Hulda Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 25. febrúar 1936. Maður hennar Ingibergur Garðar Tryggvason.
8. Sigrún Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 8. júlí 1937, d. 25. ágúst 2014. Maður hennar Pálmi Jónsson.
9. Gylfi Þór Sigurjónsson verslunarstjóri, f. 7. júlí 1942. Kona hans Jóna Bjarnadóttir.
10. Ingibjörg Sigurjónsdóttir Bankley, bjó í Bandaríkjunum, f. 18. október 1943, d. 24. apríl 2016. Maður hennar Richard Bankley.
11. Óskar Berg Sigurjónsson bifvélaviðgerðarmaður, f. 24. maí 1948. Sambýliskona var Olga Thorarensen.

Kolbeinn var með foreldrum sínum í æsku, á Sandfelli og Hvoli á Húsavík.
Hann var sjómaður, varð verkstjóri í Hraðfrystistöðinni. Hann flutti til Lands og vann í Álverinu í Straumsvík.
Hann eignaðist barn með Rannveigu 1953.
Þau Sigríður giftu sig 1955, eignuðust sjö börn, þar af þríbura. Þau skildu.
Kolbeinn bjó síðast á Hrafnistuheimilinu Hlévangi við Faxabraut 13 í Keflavík.
Hann lést 2020.


I. Barnsmóðir Kolbeins var Rannveig Snót Einarsdóttir frá Götu, f. 26. janúar 1934 í Steini, síðast í Hraunbúðum, d. 15. nóvember 2007.
Barn þeirra:
1. Einar Þór Kolbeinsson rafvirkjameistari, símvirki, tölvutæknir á Húsavík, f. 15. maí 1953 í Götu við Herjólfsgötu 12, síðar skráð Heiðarvegi 6. Kona hans María Óskarsdóttir.

II. Kona Kolbeins, (31. desember 1955, skildu), var Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal, húsfreyja, f. 26. ágúst 1932, d. 2. maí 1992.
Börn þeirra:
2. Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður í Hraunbúðum, f. 10. febrúar 1954 í Vatnsdal. Fyrrum sambúðarmaður hennar Páll Sveinsson. Fyrrum maður hennar Haraldur Geir Hlöðversson. Fyrrum maður hennar Gestur Gunnbjörnsson. Maður hennar Ómar Valur Eðvaldsson.
3. Anna Ísfold Kolbeinsdóttir verkakona, sjókona, starfsmaður Hraunbúða, þríburi, f. 24. nóvember 1955, d. 21. júní 2017. Fyrrum sambýlismaður hennar Halldór Guðmundsson, látinn. Fyrrum sambýlismaður hennar Haukur Hauksson.
4. Marý Ólöf Kolbeinsdóttir verkakona, skrifstofumaður, rekur Miðstöðina með eiginmanni sínum, þríburi, f. 24. nóvember 1955. Maður hennar Sigurvin Marinó Sigursteinsson.
5. Guðrún Fjóla Kolbeinsdóttir húsfreyja, rekur veitingastað í Vogum á Vatnsleysuströnd, þríburi, f. 24. nóvember 1955. Fyrrum sambýlismaður Sigurjón Ragnar Grétarsson. Maður hennar Jörundur Guðmundsson.
6. Ingibjörg Sigríður Kolbeinsdóttir verkakona, starfsmaður Hraunbúða, f. 4. desember 1957. Sambýlismaður hennar Baldur Þór Bragason
7. Elfa Sigurjóna Kolbeinsdóttir húsfreyja í Englandi, vinnur að umönnun aldraðra, f. 17. maí 1963. Maður hennar Patrick Tear.
8. Kolbeinn Freyr Kolbeinsson verkamaður, öryrki, f. 10. mars 1973. Fyrrum sambýliskona hans Jóhanna Ýr Jónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.