Kolbeinn Ólafsson (kaupmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. apríl 2019 kl. 12:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. apríl 2019 kl. 12:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Poul Kolbeinn Ólafsson. '''Poul ''Kolbeinn'' Ólafsson''' sjómaður, kaupmaður fæddist 21. október 1938 í Syðri-Götu í Færeyjum...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Poul Kolbeinn Ólafsson.

Poul Kolbeinn Ólafsson sjómaður, kaupmaður fæddist 21. október 1938 í Syðri-Götu í Færeyjum og lést 11. ágúst 2013.
Foreldrar hans voru Ole Sofus Poulsen frá Syðri-Götu, f. 2. ágúst 1899, fórst af völdum Stríðsins 14. janúar 1942, og Valgerður Friðriksdóttir frá Gröf, f. 10. febrúar 1892, d. 24. júlí 1957.

Hálfbróðir Kolbeins í Eyjum, sammæddur, var:
1. Vilhjálmur Sigtryggsson sjómaður, útgerðarmaður, f. 23. apríl 1915, d. 11. ágúst 1984.

Kolbeinn missti föður sinn þriggja ára gamall.
Hann fluttist með móður sinni frá Færeyjum til landsins 1942 og fluttist til Eyja 1954.
Hann var sjómaður frá fimmtán ára aldri, m.a á Gullborginni, á Herjólfi, Öðlingi og Halkion.
Ásamt Maríu rak hann bensínsöluna Klett við Strandveg frá 1967-1973. Þau ráku verslunina Mozart í Eyjum frá 1973 til 1999.
Þau María Jóhanna giftu sig 1958, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Verkamannabústöðunum við Urðaveg 1972, síðar að Túngötu 27, en síðast á Vesturvegi 10c.
Kolbeinn lést 2013.

I. Kona Kolbeins, (31. desember 1958), er María Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kaupkona, f. 11. febrúar 1940.
Börn þeirra:
1. Valgeir Ólafur Kolbeinsson vélvirki, f. 3. maí 1958. Kona hans er Sigfríður Konráðsdóttir.
2. Njáll Kolbeinsson skipstjóri, f. 31. október 1960. Kona hans er Aðalheiður Einarsdóttir.
3. Dóra Kolbeinsdóttir verkakona, f. 12. október 1962. Maður hennar er Sævar Þórsson.
4. Kolbrún Kolbeinsdóttir framhaldsskólakennari, f. 30. desember 1968.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 17. ágúst 2013. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.