Kláus Eyjólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 11:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 11:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


Kláus Eyjólfsson lögsagnari, f. um 1584.
Hann var sonur Eyjólfs Egilssonar bónda í sunnanverðum Borgarfirði eða Kjós, en Eyjólfur var bróðir sr. Ólafs EgilssonarOfanleiti. Móðir Kláusar var Guðríður Þorsteinsdóttir lögréttumanns í Höfn í Melasveit í Borgarfirði Sighvatssonar og f.k. hans Ástu (Ástríðar) Eiríksdóttur. Guðríður var því systir sr. Jóns Þorsteinssonar píslarvotts á Kirkjubæ.
Kona Kláusar var Ingibjörg Þorleifsdóttir húsfreyja. Hún var dóttir Þorleifs eldri Ásmundssonar bónda á Voðmúlastöðum og Hólmum í Landeyjum og konu hans Kristínar Vigfúsdóttur.
Kláus hafði því mikil tengsl til Eyja. Hann bjó á Hólmum a.m.k. 1630-1674.
Lögréttumaður var hann orðinn 1622 og sat á þingi til 1671. Hans er getið sem lögsagnara (umboðsmanns sýslumanns) í Eyjum árið 1635 og 1658.
Hann samdi ritgerð um Tyrkjaránið, en hún er elzta rit um þann atburð, samin í júlí 1627 og prentuð í Tyrkjaránssögu.
Börn þeirra Ingibjargar voru:
Sr. Árni prestur á Kirkjubæ;
sr. Þorleifur á Útskálum í Garði;
Vilborg húsfreyja að Ofanleiti, kona sr. Péturs Gissurarsonar.
Kláus lézt 1674, níræður að aldri.
Sigfús M. Johnsen sýslumaður samdi ritgerð um Kláus 1927.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Sýslumannaæfir IV, bls. 527. Bogi Benediktsson.
  • Lögréttumannatal, bls. 353. Einar Bjarnason.
  • Íslenzkar æviskrár III, bls. 361. Páll Eggert Ólason.
  • Borgfirzkar æviskrár XII, bls. 392. Ritstjóri Þuríður J. Kristjánsdóttir.
  • Landeyingabók – Austur Landeyingar, víða. Valgeir Sigurðsson og fleiri.
  • Annálar – Vallannáll við árið 1674.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.