Klara Magnúsdóttir (Skansinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Hákon Hafliðason og Klara Magnúsdóttir.

Klara Magnúsdóttir frá Skansinum, húsfreyja fæddist 16. október 1931 á Miðhúsum og lést 6. desember 1987 í Landakotsspítalanum í Reykjavík.
Foreldrar henar voru Magnús Þórðarson kaupmaður, verkamaður f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955, og kona hans Gíslína Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. nóvember 1889 í Bakkakoti u. Eyjafjöllum, d. 22. mars 1984.

Börn Magnúsar og Gíslínu:
1. Halldóra Guðleif Magnúsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1917 í Langa-Hvammi, d. 28. desember 2004.
2. Drengur, f. 15. janúar 1919 í Langa-Hvammi, lést nokkurra daga gamall.
3. Sigríður Gunnlaugsdóttir Magnúsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1921 í Langa-Hvammi, d. 30. ágúst 2013.
4. Ívar Magnússon verkstjóri, f. 3. október 1923 í Langa-Hvammi, d. 13. nóvember 2005.
5. Guðjón Gísli Magnússon sjómaður, f. 20. október 1924 í Litlakoti, d. 27. febrúar 2000.
6. Óskar Magnússon sjómaður, f. 15 ágúst 1927 á Miðhúsum, d. 7. janúar 1950.
7. Guðrún Lilja Magnúsdóttir ljósmóðir, f. 27. september 1928 á Miðhúsum, d. 11. ágúst 2012.
8. Magnús Magnússon bóndi, verkamaður, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009.
9. Klara Magnúsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1931 á Miðhúsum, d. 6. desember 1987.
10. Þórður Magnússon bifreiðastjóri, verktaki, f. 11. apríl 1933 á Skansinum, d. 6. mars 2021.
11. Guðmundur Magnússon blikksmiður, f. 19. september 1934 á Skansinum, d. 4. janúar 2014.

Börn Magnúsar og Margrétar Bjarnadóttur sambýliskonu hans:
12. Þórarinn Sigurður Thorlacius sjómaður, f. 27. nóvember 1906 í Langa-Hvammi, drukknaði 29. janúar 1940.
13. Magnús Sigurður Hlíðdal Magnússon sjómaður, f. 11. júlí 1910 í Langa-Hvammi, d. 13. maí 1995.
14. Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1913 í Langa-Hvammi, d. 20. apríl 1991.

Börn Magnúsar og Magneu Gísladóttur.
15. Hafsteinn Magnússon kyndari, f. 17. júní 1913, d. 30. desember 2002.
16. Axel Hálfdán Magnússon sjómaður, símsmiður, f. 28. maí 1914 í Langa-Hvammi, d. 8. janúar 2000.
17. Þorbjörn Ólafur Maríus Magnússon sjómaður, f. 19. september 1916 í Langa-Hvammi, d. í apríl 1943.

Börn Þórðar Ívarssonar í Eyjum:
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius kaupmaður, bóndi, verkamaður á Skansinum, f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955.
3. Gísli Þórðarson verkamaður, f. 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð, síðast í Görðum, d. 7. nóvember 1943.
4. Guðrún Þórðardóttir verkakona, f. 31. ágúst 1882 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. mars 1878.
Barn Þórðar Ívarssonar og fyrri konu hans Sigríðar Nikulásdóttur, f. 8. mars 1838, d. 24. maí 1864 var
5. Ívar Þórðarson á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, síðar í Eyjum, f. 3. september 1863, d. 10. apríl 1924.

Klara var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Hákon giftu sig 1954, eignuðust fjögur börn. Þau reistu nýbýlið Háteig í Djúpárhreppi 1957 og bjuggu þar til 1974. Þau fluttu þá til Keflavíkur, bjuggu þar í nokkur ár, en síðan í Reykjavík.
Klara lést 1987 og Hákon 1997.

I. Maður Klöru, (16. október 1954), var Hákon Hafliðason frá Búð í Djúpárhreppi, bóndi, bifreiðastjóri, f. 11. júní 1925, d. 23. apríl 1997 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Hafliði Guðmundsson bóndi í Búð, f. þar 30. september 1886, d. 18. mars 1980 í Reykjavík, og kona hans Guðrún Daníelsdóttir frá Kaldárholti í Holtahreppi, f. 10. febrúar 1890, d. 25. nóvember 1971.
Börn þeirra:
1. Guðrún Birta Hákonardóttir ritari í Kaupmannahöfn, f. 30. júní 1954. Fyrrum maður hennar Trausti Valsson.
2. Magnús Óskar Hákonarson bifvélavirki í Hafnarfirði, f. 13. júní 1959. Sambúðarkona hans Jórunn Ella Þórðardóttir.
3. Gíslína Hákonardóttir kjólameistari, fatahönnuður í Reykjavík, f. 8. febrúar 1962. Fyrrum sambúðarmaður Ólafur Þór Erlendsson. Sambúðarmaður Ólafur Þorgeirsson.
4. Guðfinna Hákonardóttir grunnskólakennari, f. 9. september 1968. Sambúðarmaður Sigurður Hallgrímur Ólafsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 17. desember 1987. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.