Klara Hjartardóttir (Hellisholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Klara Hjartardóttir.

Viktoría Klara Hjartardóttir frá Hellisholti, húsfreyja, iðnverkakona fæddist 29. júní 1924 í Mörk við Hásteinsveg og lést 7. júní 2013.
Foreldrar hennar voru Hjörtur Magnús Hjartarson sjómaður, verkamaður, bóndi, f. 7. ágúst 1893 í Miðey í A-Landeyjum, d. 8. október 1978, og kona hans Sólveig Kristjana Hróbjartsdóttir, f. 28. október 1902, d. 15. október 1993.

Börn Hjartar og Solveigar voru:
1. Hjörtur Kristinn Hjartarson vélstjóri, ökukennari, f. 17. desember 1921, d. 3. apríl 2012.
2. Viktoría Klara Hjartardóttir, húsfreyja, f. 29. júní 1924 í Mörk, d. 7. júní 2013.
3. Marta Hjartardóttir húsfreyja, f. 30. júní 1926 í Mörk, d. 17. janúar 2021.
4. Óskar Hjartarson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 29. ágúst 1927, d. 15. desember 2014.
5. María Hjartardóttir, f. 8. desember 1928 í Hellisholti, fórst með Glitfaxa 31. janúar 1951 ásamt Bjarna Gunnarssyni, fimm mánaða syni sínum .
6. Aðalheiður Hjartardóttir húsfreyja, f. 27. apríl 1930 í Hellisholti, d. 12. mars 2012.
7. Björgvin Hafsteinn Hjartarson byggingaverktaki, f. 10. júlí 1932 í Hellisholti.

Föðursystkini Klöru í Eyjum voru:
1. Vigdís Hjartardóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1887, d. 28. febrúar 1972.
2. Reimar Hjartarson pípugerðarmaður, f. 10. janúar 1891, d. 7. júní 1955.

Klara var með foreldrum sínum í æsku, í Mörk í fyrstu, síðan í Hellisholti.
Þau Elías giftu sig 1942 og eignuðust 5 börn.
Þau bjuggu í Hellisholti, byggðu húið Hólagötu 7 og bjuggu þar síðan til Goss.
Klara vann í Fiskiðjunni jafnframt heimilisstörfum.
Þau fluttust í Kópavog við Gosið. Þá vann Klara hjá Sjóklæðagerð Reykjavíkur, síðar dvöldu þau um skeið í hjúkrunarheimilinu Víðinesi en að lokum í Mörk við Suðurlandsbraut.
Elías lést í Mörk 2011 og Klara 2013.

Maður Klöru, (24. desember 1942), var Elías Kristjánsson sjómaður, verkamaður, f. 19. febrúar 1919, d. 4. janúar 2011.
Börn þeirra:
1. Ellý Elíasdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1944 í Hellisholti. Maður hennar: Guðmundur Stefánsson.
2. Óskar Elíasson, f. 8. ágúst 1947 í Hellisholti. Kona hans: Ingibjörg Guðjónsdóttir.
3. Guðný Sólveig Elíasdóttir húsfreyja, frístundaheimilis- og leikskólastarfsmaður í Reykjavík, f. 25. ágúst 1949 í Hellisholti, d. 28. apríl 2015. Maður hennar var Sigtryggur Antonsson.
4. Hjörtur Kristján Elíasson, f. 10. janúar 1957 á Hólagötu 37. Kona hans var Kristín Ingólfsdóttir.
5. Ómar Elíasson, f. 28. nóvember 1960 að Hólagötu 37. Maður hennar: Hallfríður Steinunn Sigurðardóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.