Klara Friðriksdóttir (Látrum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. mars 2023 kl. 13:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2023 kl. 13:46 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Klara Friðriksdóttir.

Klara Friðriksdóttir frá Látrum við Vestmannabraut 44, húsfreyja fæddist 26. september 1916 og lést 30. desember 2008 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Friðrik útvegsbóndi og formaður á Látrum, f. 7. desember 1868 í Dyrhólahjáleigu í Mýrdal, d. 29. október 1940 og kona hans Sigurína Katrín húsfreyja, f. 7. maí 1884 í Grindavíkursókn, d. 26. desember 1922.

Klara var með foreldrum sínum, en móðir hennar lést, er Klara var sex ára. Hún var með föður sínum og systkinum og sá snemma um heimilið .
Þau Jón Ísak giftu sig 1939, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Látrum.
Jón Ísak lést árið 2000 og Klara 2008.

I. Maður Klöru, (29. maí 1939), var Jón Ísak Sigurðsson hafnsögumaður, f. 17. nóvember 1911, d. 28. júní 2000.
Börn Klöru og Jóns Ísaks:
1. Friðrik Jónsson sjómaður, starfsmaður í Álverinu í Straumsvík, f. 18. september 1939.
2. Svava Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, bókhaldari, endurskoðandi, f. 30. september 1942.
3. Guðjón Þórarinn Jónsson rafvirki, f. 29. júní 1949.
4. Ragnar Jónsson læknir, f. 14. október 1952.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.