Kjartan Ólafsson (Húsavík)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. nóvember 2017 kl. 13:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. nóvember 2017 kl. 13:40 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kjartan Ólafsson yfirfiskimatsmaður í Húsavík fæddist 17. september 1894 og lést 3. ágúst 1960.
Foreldrar hans voru Ólafur Sigurðsson steinsmiður í Reykjavík, f. 28. mars 1859, d. 3. mars 1906, og kona hans Salvör Brynjólfsdóttir húsfreyja frá Norðurgarði, f. 11. janúar 1866, d. 11. júlí 1900.

Kjartan kom í fóstur til Margrétar móðursystur sinnar, húsfreyju á Miðhúsum og Hannesar lóðs 1898 og ólst þar upp.
Hann var lausamaður á Miðhúsum 1920, var fiskimatsmaður á Eystri Oddsstöðum 1930 með Helgu og óskírðum dreng fæddum á Eystri Oddsstöðum.
Þau eignuðust Brynjólf 1931, en misstu hann 1934.
Þau bjuggu í Húsavík 1940 með börnin Jón Ólaf og Margréti Rósu og enn 1945 með sömu áhöfn.
Helga kona Kjartans lést 1949 og Kjartan 1960.

I. Barnsmóðir Kjartans var Jónína Benedikta Eyleifsdóttir, síðar húsfreyja í Eyjum, f. 22. júlí 1897, d. 24. mars 1993.
Barn þeirra var
1. Henning Kristinn Kjartansson verslunar-og verkstæðiseigandi í Keflavík, f. 3. desember 1919, d. 8. apríl 2010.

II. Kona Kjartans var Helga Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. júlí 1902, d. 29. desember 1949.
Börn þeirra:
2. Jón Ólafur Kjartansson verkamaður, vélstjóri, fiskimatsmaður, verkalýðsforingi, f. 16. júlí 1930 á Eystri-Oddsstöðum, d. 13. desember 2016.
3. Brynjólfur Kjartansson, f. 1. júlí 1931 á Eystri-Oddsstöðum, d. 12. júní 1934.
4. Margrét Rósa Kjartansdóttir húsfreyja og bóndi á Staðarbakka á Snæfellsnesi, f. 25. febrúar 1936 í Húsavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.