Kirkjubæjarbraut 10

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2007 kl. 22:46 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2007 kl. 22:46 eftir Smari (spjall | framlög) (Hjólaskófluævintýri)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið við Kirkjubæjarbraut 10 var byggt árið 1962.

Í húsinu bjuggu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973 hjónin Guðmundur Ingi Guðmundsson og Kristín Pálsdóttir og börn þeirra Guðmundur Huginn, Páll Þór, Gylfi Vignir og Bryndís Anna.

Þegar að verið var að ryðja vikri ofan af húsinu á meðan á gosinu stóð var sett Payloader hjólaskófla ofan á flatt þak hússins, en þakið þoldi ekki álagið og féll hjólaskóflan í gegn niður í stofuna. Því eru steypuviðgerðir á suðurhlið hússins í dag, þar sem að brotið var til þess að ná hjólaskóflunni úr stofunni.


Heimildir

  • Fasteignamat ríkisins, www.fmr.is.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.
  • Munnleg heimild, Erlendur G. Gunnarsson