Ketill Brandsson (netagerðarmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ketill Kristján Brandsson.

Ketill Kristján Brandsson frá Krókatúni u. Eyjafjöllum, netagerðarmaður í Bólstað fæddist 16. janúar 1896 og lést 11. nóvember 1975.
Faðir hans var Brandur bóndi á Miðbæli undir Eyjafjöllum 1890, ekkill á Önundarhorni 1901, kvæntur bóndi að nýju þar 1910, f. 6. febrúar 1863, d. 16. október 1936, Ingimundarson bónda í Klömbru 1870, f. 25. maí 1829, d. 16. apríl 1884, Sigurðssonar bónda í Langagerði í Stórólfshvolssókn 1840, f. 5. ágúst 1799, d. 8. apríl 1846, Snorrasonar, og konu Sigurðar Snorrasonar, Valgerðar húsfreyju, f. 1. október 1801, d. 17. mars 1894, Bergsteinsdóttur.
Móðir Brands og kona Ingimundar í Klömbru var Sigríður húsfreyja, f. 9. ágúst 1833, d. 26. desember 1909, Jónsdóttir bónda í Miðbæli, f. 21. janúar 1787, d. 2. janúar 1871, Björnssonar, og konu Jóns í Miðbæli, Kristínar húsfreyju, f. 1797, Bjarnadóttur.

Móðir Ketils og fyrri kona Brands var Guðrún húsfreyja á Miðbæli 1890, f. 19. janúar 1858, d. 20. ágúst 1899, Jónsdóttir eldri bónda í Suðurkoti á Vatnsleysuströnd 1855, í Nýjabæ þar 1860, f. 1821, Ketilssonar bónda, kirkjuhaldara og meðhjálpara í Kirkjuvogi í Höfnum 1835, f. 1793 í Sviðholti á Álftanesi, d. 14. september 1869, Jónssonar, og fyrri konu Ketils í Kirkjuvogi, Vigdísar húsfreyju, f. 1795, d. 5. júní 1830, Jónsdóttur í Stóru-Vogum á Vatnsleysuströnd, Daníelssonar.
Móðir Guðrúnar á Miðbæli og kona Jóns Ketilssonar var Sigríður húsfreyja, f. 1831, Jónsdóttir bónda, f. 20. janúar 1808, d. 26. ágúst 1862, Jónssonar, og konu Jóns Jónssonar, Guðrúnar Guðmundsdóttur.

Systur Ketils, í Eyjum, voru:
1. Sigríður Brandsdóttir húsfreyja í Uppsölum, f. 25. ágúst 1887, d. 1. ágúst 1966, kona Gísla Ingvarssonar.
2. Guðrún Brandsdóttir húsfreyja á Bessastöðum f. 17. apríl 1895, d. 16. desember 1981, kona Eyjólfs Gíslasonar.
Hálfbróðir Ketils var
3. Valtýr Brandsson verkstjóri, f. 3. júní 1901, d. 1. apríl 1976.

Ketill missti móður sína, er hann var á fjórða árinu. Hann var tökubarn hjá Kristínu Ingimundardóttur föðursystur sinni og Una Unasyni í Syðra-Hólakoti u. Eyjafjöllum 1901 og 1910, vinnumaður hjá henni í Hrútafellskoti þar 1920 og var þar enn 1930.
Ketill eignaðist Óskar með Steinunni í Uppsölum 1929.
Hann var verkamaður í Bólstað við Heimagötu 18 1945 og enn 1949. Hann fluttist að Önundarhorni undir Eyjafjöllum og lést 1975.
I. Barnsmóðir Ketils var Steinunn Jónsdóttir frá Miðbælisbökkum u. Eyjafjöllum, þá nýflutt til Eyja, f. 19. ágúst 1903, d. 4. nóvember 1976.
Barn þeirra:
1. Óskar Ketilsson sjómaður, bóndi á Miðbælisbökkum, f. 5. apríl 1929, d. 11. maí 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.