Katrín Sveinbjörnsdóttir (Geithálsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Katrín Sigurlín Sveinbjörnsdóttir frá Skógum í Mjóafirði eystra, húsfreyja á Geithálsi fæddist 20. apríl 1895 og lést 30. júlí 1951.
Foreldrar hennar voru Sveinbjörn Hallgrímsson bóndi, f. 25. maí 1859, varð úti í Skógaskarði milli Mjóafjarðar og Seyðisfjarðar 3. október 1899, og kona hans Jónína Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. febrúar 1857 á Fossvöllum í Jökulsárhlíð.

Bróðir Katrínar var Guðjón Sveinbjörnsson sjómaður, f. 2. apríl 1893, fórst með v.b. Ceres 2. mars 1920.

Katrín var með foreldrum sínum fyrstu árin, en faðir hennar varð úti 1899. Hún ólst síðan upp með móður sinni, var með henni í vinnumennsku hennar á Brekku í Mjóafirði 1901, fylgdi henni til Seyðisfjarðar 1903.
Hún kom frá Seyðisfirði til Eyja 1910, var ,,innistúlka“ á Vesturhúsum 1910.

Þau Hjörtur giftu sig 1913, voru leigjendur á Túnsbergi í lok ársins með Jónínu móður Katrínar og 1914 með Gunnþórunni og Jónínu, bjuggu í Þorlaugargerði 1915 og 1916 með Gunnþórunni Jóhönnu og nýfæddum dreng (Óskari Sveinbirni) og Jónínu móður Katrínar. Þau bjuggu enn í Þorlaugargerði 1917 með tvö börn og móður Katrínar, en 1918 var Jónína móðir hennar farin. Þau voru komin að Geithálsi með foreldrum Hjartar 1919, en Þorsteinn Brynjólfsson og fjölskylda sem búið hafði á Geithálsi voru komin að Þorlaugargerði.
Þau bjuggu síðan á Geithálsi. Jónína Sigríður Jónsdóttir móðir Katrínar var hjá þeim þar 1920, en ekki 1921 né síðar.

Maður Katrínar, (20. desember 1913), var Hjörtur Einarsson vélstjóri, bátsformaður, f. 19. ágúst 1887, d. 30. desember 1975.
Börn þeirra voru:
1. Gunnþórunn Jóhanna Hjartardóttir, f. 7. maí 1914 á Túnsbergi, d. 5. febrúar 1972.
2. Óskar Sveinbjörn Hjartarson, f. 4. nóvember 1915 í Þorlaugargerði, d. 5. janúar 1978.
3. Drengur 22. nóvember 1917, d. 1. desember 1917.
4. Alfreð Hjörtur Hjartarson, f. 18. nóvember 1918 í Þorlaugargerði, d. 19. janúar 1981.
5. Guðjón Ragnar Hjartarson, f. 25. febrúar 1920, d. 15. febrúar 1921.
6. Svanhvít Hjartardóttir, f. 30. apríl 1923 Geithálsi, d. 18. desember 2014.
7. Einar Hjartarson, f. 31. janúar 1926 á Geithálsi, d. 31. ágúst 1986.
8. Gísli Hjartarson, f. 8. desember 1927 á Geithálsi, d. 5. janúar 2004.
9. Guðný Ragnheiður Hjartardóttir, f. 10. janúar 1931 á Geithálsi, d. 6. ágúst 2007.


ctr


Hjörtur, Katrín og nokkur börn þeirra.

Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Mjófirðingasögur. Vilhjálmur Hjálmarsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1987-1990.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.