Katrín Sigurðardóttir (Sóleyjarhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2019 kl. 18:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2019 kl. 18:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Katrín Sigurðardóttir (Sóleyjarhlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Benóný og Katrín.

Sigríður Katrín Sigurðardóttir frá Þinghól í Hvolhreppi, húsfreyja í Sóleyjarhlíð fæddist 26. maí 1909 á Stórólfshvoli og lést 28. júní 1979.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sveinsson frá Efra-Hvoli, bóndi, f. 24. nóvember 1884, d. 15. júlí 1938, og kona hans Jóhanna Jónsdóttir frá Götu í Hvolhreppi, húsfreyja, f. 1. júlí 1884, d. 21. október 1965.

Katrín var með foreldrum sínum í æsku, í vinnumennsku þeirra á Stórólfshvoli 1910, síðar með þeim í Þinghól í Hvolhreppi.
Hún fluttist til Eyja í október 1930 og gerðist vinnukona hjá Margréti Mörtu Jónsdóttur og Árna Johnsen í Árdal, Hilmisgötu 5.
Þau Benóný reistu bú, eignuðust átta börn. Þau bjuggu í Jómsborg, þá í Stafnsnesi við Heiðarveg. Þau byggðu húsið við Hásteinsveg 45 1942 og bjuggu þar síðan.
Benóný lést 1972 og Katrín 1979.

I. Maður Katrínar var Benóný Friðriksson frá Gröf, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 7. janúar 1904, d. 12. maí 1972.
Börn þeirra:
1. Sævar Benónýsson sjómaður, skipstjóri, f. 11. febrúar 1931 í Árdal, d. 15. janúar 1982.
2. Jóna Sigríður Benónýsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1935 í Jómsborg, d. 20. júlí 1984 í Keflavík.
3. Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir, f. 15. apríl 1937 í Jómsborg.
4. Oddný Jóhanna Benónýsdóttir, f. 26. júlí 1939 í Jómsborg, d. 28. júlí 1995, grafin í Fljótshlíð.
5. Friðrik Gissur Benónýsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 14. nóvember 1941 í Stafnsnesi.
6. Benóný Benónýsson, f. 29. desember 1947 í Sóleyjarhlíð, Hásteinsvegi 45.
7. Sigurður Grétar Benónýsson, f. 14. febrúar 1950 í Sóleyjarhlíð, Hásteinsvegi 45. Hann býr í Reykjavík.
8. Svanhildur Guðrún Benónýsdóttir, f. 28. október 1951 í Sóleyjarhlíð, Hásteinsvegi 45. Hún býr í Keflavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.