Katrín Árnadóttir (Ásgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. janúar 2018 kl. 11:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. janúar 2018 kl. 11:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Katrín Árnadóttir húsfreyja í Ásgarði fæddist 12. október 1905 og lést 8. maí 1981.
Faðir hennar var Árni Filippusson í Ásgarði, kennari, útgerðarmaður og gjaldkeri, f. 17. febrúar 1856, dáinn 6. janúar 1932, og kona (1898) hans Gíslína Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. apríl 1871, d. 18. júlí 1953.

Maður Katrínar var, (17. september 1926), Árni Árnason símritari, fræðimaður og bjargveiðimaður frá Grund, f. 19. mars 1901 að Vestri- Búastöðum, d. 13. október 1962.

Barn Katrínar og Árna var:
1. Hilda, f. 19. október 1926, d. 17. desember 2004, gift á Akureyri Herði prentara, f. 9. febrúar 1929, d. 9. september 2012, Svanbergssyni.
Uppeldisbörn Árna og Katrínar voru:
2. Þórarinn Guðmundsson radíóvirki, sonur Guðmundar bróður Katrínar, f. 25. apríl 1929.
3. Katrín Gunnarsdóttir fornleifafræðingur, f. 1. janúar 1947, dóttir Hildu og Gunnars Grétars Jóhannssonar, f. 1. júní 1927, d. 13. september 1974.

Fóstursystkini Katrínar Árnadóttur voru tvö systurbörn Gíslínu, móður Katrínar, börn Jóns Guðmundssonar á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka og Ingibjargar Gíslínu Jónsdóttur konu hans, (sjá Gíslínu):
1. Lúðvík Jónsson, síðar bakarameistari í Haga og síðar á Selfossi, f. 12. október 1904, d. 21. mars 1983.
2. Ágústína Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 11. maí 1906, d 1. nóvember 1989.

Katrín Gunnarsdóttir, uppeldisdóttir Katrínar og Árna segist muna vel, þegar þær systur Katrín og Guðrún Árnadætur sátu við reytingu og aðra meðferð lundans daginn út og inn milli sókninga og síðan voru gerðar sérstakar bollur fyrir veiðmennina, stórar og miklar með rúsínum í, og kallaðar „Álseyjarbollurnar“. Fylgdu þær öðrum skrínukosti til þeirra Álseyinga.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.