Kathleen Valborg Clifford

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kathleen Valborg Clifford húsfeyja í Reykjavík fæddist 28. júlí 1961 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Francis Joseph Clifford loftskeytamaður í Bandaríkjunum, f. þar 3. júní 1940, og kona hans, skildu, Arndís Egilson húsfreyja, f. 3. apríl 1942 í Reykjavík, d. 14. júní 2005 í Eyjum.
Kjörfaðir Helenar er Kjartan Þór Bergsteinsson loftskeytamaður, f. 15 september 1938 í Eyjum.

I. Barn Arndísar og fyrsta manns hennar Burk W. Smith:
1. Egill Egilson, f. 30. maí 1960. Hann dvelur erlendis.
II. Börn Arndísar og annars manns hennar Francis Joseph Clifford:
2. Kathleen Valborg Clifford, f. 28. júlí 1961. Maður hennar, (skildu), var Gunnar Bogason. Síðari maður Agnar Helgason.
3. Helene Arndis Clifford (heitir nú Helen Arndís Kjartansdóttir), f. 18. október 1963. (Sjá neðar).
III. Barn Arndísar og þriðja manns hennar Francis John Barstis:
4. Valborg Elin Barstis (heitir nú Valborg Elín Kjartansdóttir, f. 7. október 1967. (Sjá neðar).
IV. Börn Arndísar og fjórða manns hennar Kjartans Þórs Begsteinssonar:
5. Arndís María Kjartansdóttir húsfreyja, kennari, fasteignasali, f. 3. júlí 1971. Maður hennar er Ómar Steinsson.
6. Kjartan Þór Kjartansson sjómaður, f. 30. janúar 1975, ókv.
7. Kolbrún Kjartansdóttir húsfreyja, f. 6. febrúar 1980. Maður hennar er Örvar Ólafsson.
Börn Arndísar og fósturbörn Kjartans Þórs:
8. Helen Arndís Kjartansdóttir húsfreyja, f. 18. október 1963. Fyrrum maður hennar Hermann Haraldsson. Maður hennar Baldur Þór Bragason, látinn.
9. Valborg Elín Kjartansdóttir húsfreyja, f. 7. október 1967. Sambýlismaður, (skildu) var Jón Trausti Haraldsson.

Þau Gunnar giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Foldahrauni 42C, en skildu.
Þau Agnar giftu sig, eignuðust tvö börn.

I. Maður Kathleen, skildu, er Gunnar Bogason sjómaður, f. 15. ágúst 1961 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Bogi Jóhannsson rafvirkjameistari, f. 30. september 1920, d. 20. maí 2007 í Kópavogi, og kona hans Halldóra Guðrún Björnsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, ljósmóðir, f. þar 5. júlí 1921, d. 4. júní 2009 í Kópavogi.
Börn þeirra:
1. Brynja Gunnarsdóttir, f. 3. desember 1982.
2. Ellen Gunnarsdóttir, f. 14. ágúst 1985.

II. Maður Kathleen er Agnar Helgason í Reykjavík, f. 19. ágúst 1960 í Keflavík. Foreldrar hans Helgi Gestsson kranastjóri í Eyjum og Keflavík, f. 26. apríl 1938 í Reykjavík, og kona hans Árný Margrét Agnars Jónsdóttir húsfreyja, f. 8. febrúar 1942 í Reykjavík, d. 1. október 2019.
Börn þeirra:
3. Andri Már Agnarsson, f. 8. mars 1992.
4. Árný Margrét Agnarsdóttir, f. 23. september 1994.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.