Karl Óskar Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. október 2022 kl. 20:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. október 2022 kl. 20:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Karl Óskar Guðmundsson.

Karl Óskar Guðmundsson frá Viðey, skipstjóri, útgerðarmaður fæddist 6. apríl 1911 í Nýjabæ í Ásahreppi, Rang. og lést 16. janúar 1986.
Foreldrar hans voru Guðmundur Einarsson frá Bjólu bóndi, útgerðarmaður í Viðey, f. 18. nóvember 1885 í Rifshalakoti í Ásahreppi, Rang., d. 14. mars 1943 í Eyjum, og kona hans Pálína Jónsdóttir húsfreyja, f. 14. júlí 1880 í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, d. 6. mars 1963 í Reykjavík.

Börn Pálínu og Guðmundar:
1. Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1908, d. 24. desember 1987. Maður hennar var Adolph Lauritz Hólm.
2. Jónína Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1. desember 1909, d. 19. júní 1910.
3. Karl Óskar Guðmundsson skipstjóri, f. 6. apríl 1911, d. 16. janúar 1986.
4. Jón Óskar Guðmundsson bóndi í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., síðar smiður í Reykjavík, f. 30. mars 1912, d. 17. mars 2009. Hann var fóstraður hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Kona hans var Sigurbjörg Gísladóttir.
5. Ármann Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 28. maí 1913, d. 3. júlí 2002.
6. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari á Flateyri, f. 2. ágúst 1914, d. 26. apríl 2006.
7. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. desember 1915, d. 29. maí 2011.
8. Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Viðey, f. 19. apríl 1917, d. 14. október 1998.
9. Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júlí 1918, d. 2. janúar 2012. Hún var fóstruð hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Maður hennar var Óskar Pálsson.
10. Geir Óskar Guðmundsson véltæknifræðingur í Reykjavík, f. 18. desember 1920, d. 5. október 1991.
11. Sigurður Óskar Guðmundsson verkamaður í Viðey, f. 25. mars 1922, d. 27. janúar 1980.
12. Kristinn Óskar Guðmundsson lögfræðingur, bæjarstjóri, f. 2. nóvember 1924, d. 26. febrúar 2011.
Börn Guðmundar Einarssonar og Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu, f. 11. desember 1891, d. 13. janúar 1957:
13. Aðalheiður Guðmundsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 25. nóvember 1919, d. 5. ágúst 2008. Hún var ógift.
14. Guðbjörg Svava Guðmundsdóttir húsfreyja á Ísafirði, f. 16. september 1921, d. 22. desember 2007. Maður hennar var Ólafur Markús Guðjónsson stýrimaður.
15. Ólafía Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. september 1921, d. 17. apríl 1992.
Barn Guðmundar Einarssonar og Steinunnar Guðmundsdóttur vinnukonu á Bjólu í Djúpárhreppi:
16. Helgi Guðmundsson bóndi í Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, f. 13. september 1902, d. 25. september 1932. Kona hans var Steinvör Jónsdóttir.
Uppeldisbróðir systkinanna, sonur Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu var
17. Ragnar Hafliðason málarameistari, kaupmaður, f. 12. nóvember 1928 í Viðey, d. 3. desember 2019.

Karl var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Eyja 1921.
Hann tók hið minna fiskimannapróf í Eyjum 1930.
Karl Óskar var sjómaður frá sextán ára aldri, skipstjóri í Eyjum í 16 ár, frá 1931-1947. Þá fluttist hann að Skeggjastöðum í Mosfellssveit og síðan til Reykjavíkur, var skipstjóri og stýrimaður þar og á Akranesi til 1975, síðan háseti á Víkingi AK 100.
Þau Sigríður giftu sig 1935, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Einidrangi, Brekastíg 29 1935, í Steinum við Urðaveg 8 1941 og í Dal við Kirkjuveg 35 1946.
Þau fluttu í Mosfellssveit 1947, bjuggu á Skeggjastöðum og í Grafarholti, sem þá var í Mosfellssveit, og síðan í Reykjavík.
Karl Óskar lést 1986 og Sigríður 2003.

I. Kona Karls Óskars, (1935), var Sigríður Sóley Sveinsdóttir úr V-Skaft., húsfreyja, f. 26. maí 1913 á Þykkvabæjarklaustri, d. 7. maí 2003.
Börn þeirra:
1. Viðar Einarsson, f. 26. nóvember 1935 á Einidrangi. Kona hans Adda Ingvarsdóttir.
2. Svanhildur Karlsdóttir, f. 3. október 1941 í Steinum.
3. Hrafnhildur Karlsdóttir, f. 2. júní 1946 í Dal. Sambýlismaður hennar Ómar Guðmundsson.
4. Guðmundur Karlsson vélaverkfræðingur, framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 24. mars í Grafarholti í Mosfellssveit. Kona hans Sigrún Katrín Sigurjónsdóttir. Barnsmóðir hans Karen Hólmgeirs Jóhannsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
  • Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.