Karl Björnsson (bakarameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. maí 2019 kl. 21:02 eftir Sessa (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. maí 2019 kl. 21:02 eftir Sessa (spjall | framlög) (Myndir eiga ekki við- einstaklingar ekki skyldir.)
Fara í flakk Fara í leit
Karl

Karl Óskar Jón Björnsson fæddist 2. október 1899 og 31. janúar 1954. Hann var bakari í Víðidal. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir og Björn Jónsson bakarameistari í Nikulásarkoti við Klapparstíg í Reykjavík.

Karl byrjaði ungur að hjálpa föður sínum í bakaríinu og fór síðan til framhaldhaldsnáms til Kaupmannahafnar í eitt ár og lagði þá stund á kökugerð sérstaklega. Hann fór utan tvívegis til að kynna sér það sem komið hafði nýtt í faginu, enda var hann vel fróður um sitt fag. Sjálfstætt starfaði hann í Reykjavík, Keflavík og síðast í Vestmannaeyjum.

Karl var listrænn. Hann var vel hagmæltur, skrifaði bæði gott mál og ágæta rithönd, hann var bókamaður mikill og átti bókakost ágætan. Sjálfur gaf hann út þrjár bækur; Brauð og kökur, Sultu- og Coktail bókin og síðast Sælgæti, sultur og saftir. Íþróttamaður var hann ágætur og varð hann þekktastur sem sundmaður. Hann varð að minnsta kosti einu sinni sundkappi ársins í Vestmannaeyjum.

Eiginkona hans var Guðrún Scheving. Þau opinberuðu trúlofun sína 12. október 1935. Þau eignuðust sex börn: Helga Scheving, Björn Ívar, stúlkubarn sem fæddist 1946 og lést aðeins sólarhringsgömul, Sigurð Örn, Hrafn, og Sesselju Karitas.






Heimildir

  • Minningargrein í Morgunblaðinu, 9. febrúar 1954.