Karl Ólafsson (Heiðarbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. janúar 2014 kl. 22:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. janúar 2014 kl. 22:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Karl

Karl Ólafsson fæddist 30. janúar 1915 og lést 13. júlí 1990. Foreldrar hans voru Ólafur Ingileifsson og Sigurjóna Sigurjónsdóttir. Samfeðra Karli voru Sigurgeir, Eggert, Einars á Kap, Guðna á Gjafari og Jóna Guðrún húsfreyja á Víðivöllum.

Karl bjó á Hásteinsvegi 7 en í Reykjavík seinni árin.

Karl var formaður með mótorbátinn Mýrdæling. Hann var lengi félagi í Taflfélagi Vestmannaeyja og Skákmeistari Vestmannaeyja 1960.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Karl:

Kannar gniðar kaldan völl
Kalli borinn Óla,
þó að svæsin sævar föll
siglum vilji róla.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Karl hræðist víði varla,
ver Ólafs þann ég geri.
Gísla Johnsen á sýslar,
særinn, þó slíti færi.
Happsamur knarrar kappi
kann sig á leiðum hranna.
Tafl kann sá Týrinn afla,
talfár er greindur halur.

Myndir



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.

enn að.