Karítas Jónsdóttir (mormóni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Karítas Jónsdóttir vinnukona frá Lágu-Kotey í Meðallandi, síðar í Utah fæddist 7. júlí 1834 í Lágu-Kotey og mun hafa látist í Utah.
Foreldrar hennar voru Jón Brynjólfsson frá Smyrlabjörgum í Suðursveit, bóndi í Lágu-Kotey, á Undirhrauni og Söndum í Meðallandi, f. 1800, d. 17. janúar 1863 í Hrífunesi í Skaftártungu og kona hans Evlalía Erlendsdóttir húsfreyja frá Bakkakoti í Meðallandi, f. 9. febrúar 1798, d. 17. febrúar 1858 á Söndum.

Karítas var með foreldrum sínum í bernsku, var fósturbarn í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1845, kom frá Vesturholtum þar til foreldra sinna á Söndum 1849 og var þar til 1850. Hún var vinnukona í Hrífunesi 1850-1853, hjá foreldrum sínum á Söndum 1853-1855.
Karítas kom til Eyja úr Meðallandi 1855 og var vinnukona á Ofanleiti í lok ársins, í Godthaab 1856.
Karítas var í hópi fyrstu mormóna í Eyjum og fluttist til Utah 1857 í hópi 20 manna, sem presturinn skráði þangað farna.
Þar voru m.a.:
1. Magnús og
2. Þuríður frá Helgahjalli með
3. Dóttur þeirra Kristínu eins árs
4. Loftur Jónsson og fjölskylda hans
5. Guðný Erasmusdóttir ekkja, síðar viðbótarkona Magnúsar í Helgahjalli
6. Vigdís Björnsdóttir
7. Kristín Magnúsdóttir
8. Karítas Jónsdóttir
9. Anna Guðlaugsdóttir.
Auk þess er talin meðal Ameríkufara Ingunn Larsdóttir, en hún mun hafa haldið til Danmerkur, er til Englands kom.
Afdrif Karítasar eru ókunn hér.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.