Kaplagjóta

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júní 2005 kl. 15:05 eftir Eyjavefur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júní 2005 kl. 15:05 eftir Eyjavefur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þar var hestum áður varpað niður. Örnefnið er dregið af því að þar var óskila færleikum hrundið ofan í sjóinn forðum sem fundust fram yfir regluna. Þaðan eru til sögur af litlum dreng sem að gekk aftur.

Tíkartóa-draugurinn

Í suðaustanverðu Dalfjalli, ofan við Kaplagjótu, eru grösugar hillur,sem nefndar hafa verið Tíkartær. Um langt skeið hafðist þar við afturganga sem menn urðu oft varir við. Tildrög að afturgöngu þessari voru þau, að einhverju sinni hafði burðarlítill piltur verið sendur út á fjall til lundaveiða. Fór hann nauðugur í þessa ferð en hart hafði verið að honum gengið. Hrapaði hann í Tíkartónum og gekk síðan aftur. Sást hann oft vera að steypa sér kollhnís fram af Tíkartónum ofan í Kaplagjótu en aldrei gerði hann neinum manni mein, af því er kunnugt sé.


Úr bókinni Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum