Kanínur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Kanína
Spendýr
Landdýr
Sjávarspendýr

Kanínur bárust líklega til Heimaeyjar sem gæludýr sem síðan var sleppt út í náttúruna og hafa náð að laga sig að aðstæðum. Sveiflur eru í stofninum en talið er að í honum séu um 2000 dýr. Mikill fjöldi hafði komið sér fyrir austan í Sæfjalli en var fækkað af meindýraeyði árið 2000. Útbreiðsla kanínu er víða s.s. í Nýjahrauni, á Haugum, allt í kringum Lyngfell og niður að fjöru í Víkinni og upp með Ofanleitishamri sem og um móa við flugvöllinn.

Kanínurnar eru grasætur og lifa á gróðrinum á eyjunni. Þær brýna tennur sínar á trjám með því að naga hringinn í kring um stofninn og drepa þannig tréð. Af þessum sökum er kanínan mikill skaðvaldur á Heimaey þar sem hún skemmir nýrækt og uppgræðslusvæði. Kanínan er einnig meinvaldur gagnvart öðrum lífverum og má þá nefna lundann en kanínur taka sér bólfestu í lundabyggð og hindra þannig aðgang lundans að henni. Í lundabyggðunum nagar hún einnig grasrætur sem hanga inni í holunum, veldur þannig skemmdum á gróðri og eykur hættu á skriðum. Dæmi um lundabyggð sem hefur orðið fyrir slíkum skakkaföllum er byggðin austan í Sæfjalli.