Jónína Steinunn Guðmundsdóttir (París)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. febrúar 2016 kl. 15:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. febrúar 2016 kl. 15:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jónína Steinunn Guðmundsdóttir (París)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Jónína Steinunn Guðmundsdóttir frá París, síðar húsfreyja í Utah fæddist 31. janúar 1880 og lést 4. mars 1963.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson tómthúsmaður, lóðs í París, f. 22. janúar 1842, d. 24. ágúst 1919, og Jóhanna Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1. október 1841, d. 22. apríl 1935.

Börn Guðmundar og Jóhönnu:
1. Sólrún Guðmundsdóttir, f. 11. október 1867, d. 8. mars 1949 í Taber í Alberta í Kanada. Hún fór til Vesturheims frá Juliushaab 1888.
2. Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 20. janúar 1870, d. 24. nóvember 1892. Hún fór til Vesturheims 1888 frá Jómsborg.
3. Ingveldur Guðmundsdóttir, f. 8. janúar 1872, d. 29. nóvember 1873 úr kverkabólgu.
4. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 2. maí 1873, d. 9. nóvember 1891.
5. Ingveldur Guðmundsdóttir, f. 30. desember 1874, d. 11. júlí 1966. Hún fór til Vesturheims 1887 frá Godthaab.
6. Guðbjörg Guðmundsdóttir, tvíburi, f. 14. nóvember 1876. Hún fór til Vesturheims 1886 frá París.
7. Guðmundur Guðmundsson, tvíburi, f. 14. nóvember 1876, d. 17. nóvember 1876 „af almennri barnaveiki“.
8. María Guðmundsdóttir, tvíburi, f. 11. maí 1878. Hún fór til Vesturheims 1886 frá París, d. 15. september 1951 í Provo, Utah.
9. Katrín Guðmundsdóttir, tvíburi, f. 11. maí 1878, d. 14. nóvember 1880 úr „hálsveiki“.
10. Jónína Steinunn Guðmundsdóttir, f. 31. janúar 1880. Hún fór til Vesturheims frá París 1886.
Auk þessa átti Jóhanna barn með Sæmundi Ólafssyni frá Steinmóðsbæ u. Eyjafjöllum, f. 24. desember 1831, d. 20. mars 1863.
Barn þeirra:
11. Sæmundur Sæmundsson, f. 25. apríl 1863 í Stakkagerði. Hann fór til Vesturheims 1886 frá París, d. 12. janúar 1890.

Jónína Steinunn var með foreldrum sínum í æsku og fluttist með þeim til Spanish Fork í Utah 1886.
Hún giftist Angus Lee Harmer 1897. Þau fluttust til Raymond í Alberta í Kanada skömmu eftir 1900 og bjuggu þar um 6 ára skeið, en sneru þá til Utah og settust að í Mapleton.
Jónína Steinunn lést 1963.

Maður hennar, (1897), var Angus Lee Harmer.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.