Jónína Ingibjörg Jónsdóttir (Norður-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 15:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 15:20 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jónína Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Norður-Gerði fæddist 25. júní 1887 og lést 2. nóvember 1972.
Faðir hennar voru Jón Jónsson formaður á Halkion og bóndi í Norður-Gerði, f. á Brattlandi í Prestbakkasókn á Síðu 22. júlí 1854, d. 1. apríl 1925.
Foreldrar Jóns voru Jón Jónsson, f. 2. júní 1831, d. 27. september 1907 og k.h. Ingibjörg Stefánsdóttir, f. 19. ágúst 1831, d. 27. júlí 1907, síðar hjón í Presthúsum.
Jón í Norður-Gerði var bróðir Guðlaugs í Stóra-Gerði.
Móðir Jónínu Ingibjargar og kona Jóns var Guðbjörg Björnsdóttir Einarssonar bónda á Kirkjubæ, húsfreyja, f. í Dalssókn undir Eyjafjöllum, f. 28. júní 1854, d. 4. maí 1933, og konu Björns Guðríðar Hallvarðsdóttur húsfreyju, f. 24. febrúar 1826.
Guðbjörg var systir Guðjóns Björnssonar bónda á Kirkjubóli, Ingibjargar Björnsdóttur húsfreyju í Pétursborg og Finnboga formanns í Norðurgarði, föður þeirra Björns á Kirkjulandi, Árna í Hvammi, Stefáns í Framtíð og Finnboga í Vallartúni.

Maður Jónínu Ingibjargar var Björn Erlendsson bóndi í Gerði, f. 18. júní 1878, d. 8. mars 1923.
Barn þeirra Björns Erlendssonar var:
Guðjón Björnsson sjómaður, f. 10. maí 1908, d. 28. nóvember 2009.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Vestur- Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Manntöl.
  • Vestmannaeyjar — Byggð og eldgos. Guðjón Ármann Eyjólfsson. Ísafoldarprentsmiðja H.F. 1973.
  • Heimaslóð.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.