Jónína Hólmfríður Sigurðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. desember 2016 kl. 19:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. desember 2016 kl. 19:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jónína Hólmfríður Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 30 (Hofsstöðum) fæddist 29. júlí 1897 á Norðfirði og lést 25. nóvember 1978.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson bóndi, sjómaður og smiður, síðar í Akurey, f. 25. janúar 1865, d. 8. desember 1914, og kona hans Hildur Eiríksdóttir húsfreyja, f. 8. janúar 1862, d. 8. mars 1923.

Börn Hildar og Sigurðar voru:
1. Sigríður Jónína Sigurðardóttir, f. 22. september 1890, nýfædd hjá þeim í Nýborg 1890, tveggja ára þar með þeim 1892, 5 ára með Hildi í Vanangri 1895, dó 15. febrúar 1898 í Stekkjarnesi í Norðfirði.
2. Jóhann Ólafur Sigurðsson, f. 11. janúar 1892. Hann var gefinn til Færeyja 1899, 7 ára, fór frá Nesi í Norðfirði samtímis Stefáni Péturssyni.
3. Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 23, f. 22. febrúar 1895, d. 9. júní 1948.
4. Jónína Hólmfríður Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 30, (Hofsstöðum), f. 29. júlí 1897 á Norðfirði, d. 25. nóvember 1978.
5. Sigríður Jónína Sigurðardóttir húsfreyja á Brekastíg 30 (Hofsstöðum), f. 23. september 1898 í Stekkjarnesi í Norðfirði, d. 30. desember 1977.
6. Guðrún Dagmar Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 10. apríl 1900, d. 16. ágúst 1993.
7. Engilbert Ottó Sigurðsson, f. 16. október 1901, d. 5. maí 1930.
8. Alfons Halldór Sigurðsson, f. 2. mars 1904, d. 2. desember 1927.

Jónína Hólmfríður var með foreldrum sínum á Norðfirði og fluttist með þeim til Eyja frá Mjóafirði 1902.
Hún var með þeim í Björgvin í fyrstu, var hjú í Ási 1910-1912, vinnukona í Laufási 1920, var hjá móður sinni í Akurey 1922 og þar var Ottonius Engilbert lausamaður.
Þau Ottonius Engilbert giftu sig 1923, bjuggu í Skipholti á því ári.
Jónína var húsfreyja á Brekastíg 30 (Hofsstöðum) 1930 og enn 1949, síðast í Reykjavík.
Ottonius lést 1975 og hún 1978.

Maður Jónínu Hólmfríðar, (10. maí 1923), var Ottonius Engilbert Árnason sjómaður, f. 16. nóvember 1895, d. 26. janúar 1975.
Barn þeirra, fósturdóttir, var
1. Elín Hildur Guðmundsdóttir, f. 9. mars 1933.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.