Jóna Alda Illugadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. febrúar 2018 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. febrúar 2018 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóna Alda Illugadóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík fæddist 17. júlí 1918 í Úthlíð og lést 2. ágúst 1992.
Foreldrar hennar voru Guðný Eyjólfsdóttir verkakona í Úthlíð, f. 7. júní 1890 í Björnskoti u. Eyjafjöllum, d. 10. febrúar 1979, og barnsfaðir hennar Illugi Hjörtþórsson formaður í Landlyst, f. 26. júlí 1886 á Eyrarbakka, d. 30. nóvember 1930.

Systur hennar sammæðra voru:
1. Guðrún Ágústsdóttir húsfreyja á Eskifirði, síðast á Selfossi, f. 6. september 1910 í Gerðakoti u. Eyjafjöllum, d. 11. maí 1999.
2. Sigríður Ágústsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 5. júní 1912 í Mið-Skála u. Eyjafjöllum, d. 14. október 1996.
Systkini Jónu Öldu samfeðra voru:
3. Elías Óskar Illugason formaður, síðast í Hafnarfirði, f. 1. nóvember 1909 á Brekku, d. 13. maí 1975.
4. Einar Sölvi Illugason vélvirkjameistari, f. 1. apríl 1911 á Brekku, d. 28. ágúst 1972.
5. Gréta Vilborg Illugadóttir húsfreyja, síðast í Kópavogi, f. 13. apríl 1912 á Brekku, d. 1. mars 1999.
6. Gunnlaugur Sæmundur Illugason, f. 28. nóvember 1914 í Landlyst, d. 2. júní 1916.
7. Gunnlaugur Hólm Illugason, f. 17. september 1917 í Landlyst, d. 24. nóvember 1918.
8. Guðný Inga Illugadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. júní 1920 í Landlyst, d. 16. nóvember 2001.
9. Þóra Hólm Illugadóttir Hind húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 2. mars 1928 á Hjalteyri.

Jóna Alda var með móður sinni í Úthlíð í bernsku. Hún var fósturdóttir Björgvins Jónssonar þar 1940.
Þau Páll giftu sig 1944. Þau eignuðust ekki börn, en fóstruðu Sigríði Vigdísi. Þau bjuggu í Reykjavík. Jóna Alda lést 1992 og Páll 2008.

I. Maður Jónu Öldu, (6. október 1944), var Páll Guðmundsson verslunarstjóri, f. 5. september 1914 á Stokkseyri, d. 8. janúar 2008. Foreldrar hans voru Guðmundur Pálsson verkamaður í Vatnsdal á Stokkseyri, f. 21. febrúar 1889 í Galtarholti á Rangárvöllum, d. 9. janúar 1968, og kona hans Magnea Halldórsdóttir húsfreyja frá Ásmúla í Holtum, f. 23. apríl 1889, d. 12. mars 1955.
Fósturdóttir þeirra er
1. Sigríður Vigdís Gunnlaugsdóttir Clark, f. 22. júní 1950 á Hásteinsvegi 7. Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Sigurðsson sjómaður, f. 20. maí 1921 á Reynifelli, d. 29. nóvember 1963, og kona hans Jóhanna Bjarnheiður Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. mars 1920 á Mið-Grund u. Eyjafjöllum, d. 20. nóvember 1954.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.