Jón Þorsteinsson (Tómasarbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 21:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 21:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorsteinsson bóndi í Tómasarbæ fæddist 1645 og lést á bilinu frá lokum maí 1703- mai 1704.
Jón var bóndi í Tómasarbæ 1703 með konu sinni Emerentsíönu, vinnumanninum Dagstyggi Guðmundssyni, og vinnukonunni Helgu Brynjólfsdóttur 18 ára.
Jón er ekki nefndur í Jarðabókinni 1704, en þá er Emerentsíana einn af ábúendum á Ofanleiti. Því er ekki ólíklegt, að Tómasarbær hafi verið ein af hjáleigum Ofanleitis.

Kona Jóns var Emerentsíana Ásgeirsdóttir húsfreyja, f. 1643, á lífi 1704.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Hið íslenska fræðafélag í Kaupmannahöfn 1913-1917.
  • Manntal 1703.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.