Jón Ögmundsson (Dalbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. febrúar 2017 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. febrúar 2017 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ögmundsson í Dalbæ fæddist 8. júlí 1840 í Reynisholti í Mýrdal og lést 3. janúar 1904.
Foreldrar Jóns voru Ögmundur Árnason bóndi í Reynisholti í Mýrdal, síðar í Eyjum, f. 10. október 1809, d. 10. janúar 1888, og kona hans Þóra húsfreyja, f. 1814, d. 14. apríl 1860, Jónsdóttir.

Jón var með foreldrum sínum í Reynisholti til ársins 1860, vinnumaður þar 1860-1864, fyrirvinna í Presthúsum þar 1864-1865, bóndi þar 1865-1876, vinnumaður í Norður-Hvammi þar 1876/7-1878.
Hann fluttist til Eyja 1878, var vinnumaður þar, - í Stakkagerði var hann 1880 og 1890, hjá Þóru dóttur sinni í Dalbæ 1901.
Bræður Jóns í Eyjum voru:
1. Ögmundur Ögmundsson á Landakoti, f. 6. ágúst 1848, d. 8. október 1932.
2. Arnbjörn Ögmundsson í Presthúsum, f. 5. apríl 1853, d. 1. júní 1941.
Systir þeirra var Málfríður Ögmundsdóttir föðurmóðir Auðuns Oddssonar formanns á Sólheimum.

Kona Jóns Ögmundssonar var Rannveig húsfreyja í Presthúsum í Mýrdal, f. 1829, d. 7. mars 1876, Björnsdóttir bónda í Steinum, f. 1802, Jónssonar og konu Björns, Guðrúnar húsfreyju, f. 1804, d. 29. desember 1877, Jónsdóttur.

Börn Jóns og Rannveigar hér:
1. Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Dalbæ, f. 17. júní 1868, d. 11. mars 1965, gift Helga Guðmundssyni í Dalbæ, f. 9. júlí 1870, d. 11. mars 1924.
2. Jóhannes Jónsson í Helgahjalli, f. 14. maí 1866 í Presthúsum í Mýrdal, d. 1895 í Spanish Fork í Utah, kvæntur Maríu Friðriku Guðmundsdóttur húsfreyju frá Batavíu, f. 3. mars 1868 og lést Vestanhafs.
3. Guðný Jónsdóttir, f. 2. september 1875, d. 1883.
Barnsmóðir Jóns var Sesselja Árnadóttir, f. 1835.
Barn þeirra var
4. Oddný Jónsdóttir, húsfreyja í Hraunbæ í Álftaveri, f. 1863, d. 1938.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.