Jón Kjartansson (Húsavík)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. febrúar 2018 kl. 20:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. febrúar 2018 kl. 20:55 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jón Ólafur Kjartansson.

Jón Ólafur Kjartansson frá Húsavík, sjómaður, vélstjóri, verkamaður, verkalýðsforingi fæddist 16. júlí 1930 á Eystri-Oddsstöðum og lést 13. desember 2016.
Foreldrar hans voru Kjartan Ólafsson frá Miðhúsum, yfirfiskimatsmaður í Húsavík, f. 17. september 1894 í Reykjavík, d. 3. ágúst 1960, og kona hans Helga Jónsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, f. 18. júlí 1902, d. 29. desember 1949.

Barn Kjartans Ólafssonar:
1. Henning Kristinn Kjartansson verslunar-og verkstæðiseigandi í Keflavík, f. 3. desember 1919, d. 8. apríl 2010.
Börn Kjartans og Helgu Jónsdóttur:
2. Jón Ólafur Kjartansson verkamaður, vélstjóri, fiskimatsmaður, verkalýðsforingi, f. 16. júlí 1930 á Eystri-Oddsstöðum, d. 13. desember 2016.
3. Brynjólfur Kjartansson, f. 1. júlí 1931 á Eystri-Oddsstöðum, d. 12. júní 1934.
4. Margrét Rósa Kjartansdóttir húsfreyja og bóndi á Staðarbakka á Snæfellsnesi, f. 25. febrúar 1936 í Húsavík.

Jón var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk gagnfræðaprófi 1947 og minna vélstjóraprófi í Eyjum 1952.
Hann var sjómaður og vélstjóri á ýmsum Eyjabátum, verkamaður og fiskimatsmaður.
Jón átti gildan þátt í verkalýðsmálum og var m.a. formaður verkalýðsfélags Vestmannaeyja, fulltrúaráðsins og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja. Þá var hann einn af stofnendum Verndaðs vinnustaðar í Eyjum og stjórnarformaður frá stofnun hans 1982 til 1992.
Hann var líka í stjórn Verkamannasambandsins um árabil og í forystu um uppbyggingu og framkvæmd fræðslu fyrir fiskverkafólk.

Þau Sigríður giftu sig 1951, bjuggu í Húsavík 1950, á Skjaldbreið 1952 og enn 1957, síðar í Húsavík, en fluttust að Hjarðarholti við Vestmannabraut 69 nokkru fyrir Gos og bjuggu þar síðar. Þau eignuðust 6 börn.
Sigríður lést 1983 og Jón 2016.

Kona Jóns, (18. júlí 1951), var Sigríður Angantýsdóttir húsfreyja frá Siglufirði, f. 1. apríl 1932 á Geirseyri, d. 18. desember 1983.
Börn þeirra:
1. Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur í Reykjavík, f. 1. september 1950 í Húsavík.
2. Kjartan Jónsson netagerðarmaður á Stokkseyri, gangavörður í Reykjavík, f. 5. október 1952 á Skjaldbreið.
3. Helga Jónsdóttir húsfreyja, framkvæmdastjóri í Eyjum, f. 11. ágúst 1955 á Skjaldbreið.
4. Ástþór Jónsson stýrimaður og útgerðarmaður, verslunarstjóri, f. 26. ágúst 1957 á Skjaldbreið.
5. Heimir Jónsson stýrimaður, tölvufræðingur, forstöðumaður, f. 13. desember 1963 í Húsavík.
6. Jóhanna Ýr Jónsdóttir húsfreyja, sagnfræðingur, þýðandi, f. 25. nóvember 1974 á Sjúkrahúsinu.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Jóhanna Ýr Jónsdóttir.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 14. janúar 2017. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.