Jón Jónsson eldri (Enda)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. september 2016 kl. 10:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. september 2016 kl. 10:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þorbjörg og Jón.
Húsið Endi.

Jón Jónsson bóndi, formaður, smiður fæddist 19. október 1885 og lést 8. desember 1955.
Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi og hreppstjóri á Hlíðarenda í Ölfusi, f. 7. ágúst 1850, d. 10. apríl 1945, og kona hans Þórunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 19. júní 1861, d. 24. nóvember 1937.

Jón var með fjölskyldu sinni á Hlíðarenda, kvæntist Þorbjörgu 1914 og bjó á Hlíðarenda til 1930. Hann hafði einnig verið sjómaður og formaður í Þorlákshöfn.
Hjónin fluttu með börnin til Eyja 1930 og bjuggu á Brekku í lok ársins, á Skildingavegi 8 1934, en síðan á Vesturvegi 34, sem var vestasta húsið við götuna og almennt nefnt Endi. Það hús byggðu þau 1934.
Jón stundaði trésmíðar í Eyjum og síðar í Reykjavík.
Hann flutti til Reykjavíkur, en Þorbjörg bjó í Eyjum til dánardægurs. Hún hélt heimili á Enda með Hjálmari og Þórunni. Jón lést 1955 og var grafinn í Reykjavík. Þórunn lést í Eyjum 1962 og var grafin við hlið Jóns.

Kona Jóns á Enda var Þorbjörg Sveinbjörnsdóttir húsfreyja, f. 10. apríl 1885, d. 24. júlí 1962.
Börn Jóns og Þorbjargar voru:
1. Guðrún Jónsdóttir, f. 21. febrúar 1916, d. 12. júlí 1930.
2. Sveinn Jónsson vélstjóri, forstjóri í Reykjavík, f. 8. febrúar 1917, d. 3. apríl 1999. Kona hans var Ester Lovísa Sigbjörnsdóttir húsfreyja, f. 6. maí 1924.
3. Jón Jónsson flugstjóri, f. 23. janúar 1918, d. 14. apríl 1963. Kona hans var Hjálmfríður (Fríða) Hallgrímsdóttir húsfreyja, f. 10. maí 1927.
4. Vémundur Jónsson netagerðarmaður, vélstjóri í Eyjum, f. 23. maí 1920, d. 11. mars 1984. Kona hans var Guðný Sigurleif Stefánsdóttir húsfreyja.
5. Þórunn Jónsdóttir saumakona í Eyjum, f. 23. maí 1920, d. 27. júlí 2002.
6. Hjálmar Jónsson skipstjóri í Eyjum, f. 26. júní 1921, d. 16. febrúar 1978.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ölfusingar - búendatal Ölfushrepps 1703-1980. Eiríkur Einarsson. Reykjavík. Sögusteinn 1985.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.