Jón Jónsson Austmann

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. desember 2013 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. desember 2013 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson


Jón Jónsson Austmann var prestur að Ofanleiti í Vestmannaeyjum frá árinu 1827 til ársins 1858. Hann var sonur séra Jóns Jónssonar prests að Kálfafelli og Guðnýjar Jónsdóttir. Hann fæddist á Lyngum í Skaftafellssýslu 13. maí 1782 og lést árið 1858.

Nám og störf

Jón útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla árið 1809. Hann varð aðstoðarprestur að Sólheimum í Mýrdal og fékk síðan Skúmsstaða- og Stórólfshvolsþing. Jón hafði brauðaskipti við séra Sigurð Thorarensen prest að Mýrum í Álftaveri og fluttist þangað í fardögum 1817. Hann fékk veitingu fyrir Ofanleitisprestakall árið 1827 og hélt því til æviloka 1858. Hann var því prestur í Vestmannaeyjum í alls 31 ár. Kona séra Jóns var Þórdís Magnúsdóttir. Þau áttu saman ellefu börn og eru nokkrir afkomendur þeirra enn búsettir í Vestmannaeyjum. Á meðal barna þeirra voru Stefán Austmann og Guðfinna Jónsdóttir Austmann.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason. Eyjar gegnum aldirnar. Reykjavík: Örn og Örlygur 1982.
  • Þorkell Jóhannesson. Örnefni í Vestmannaeyjum. Reykjavík: Hið íslenzka þjóðvinafélag, 1938.