Jón Jónsson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 17:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 17:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Jónsson húsmaður á Kirkjubæ fæddist 22. janúar 1857 á Oddsstöðum og lést 26. september 1930 í Utah.
Foreldrar hans voru Jón Bjarnason bóndi á Oddsstöðum, f. 20. október 1817, d. 22. apríl 1887, og síðari kona hans Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 1825, d. 23. maí 1867.

Jón var með foreldrum sínum og síðan föður sínum til 1870.
Hann var 13 ára léttadrengur í Sjólyst 1871, með föður sínum í Helgahjalli 1873-1875, lausamaður í Grímshjalli 1876, vinnumaður í London 1877, í Frydendal 1878, í Jónshúsi 1879 og 1880.
Jón var ókvæntur húsmaður á Kirkjubæ 1881 með bústýruna Vilborgu Jónsdóttur og þar var barn þeirra Helgi Guðjón eins árs, þar 1882, en Helgi Guðjón dó á árinu í mislingafaraldri.
1883 voru þau Vilborg hjón á Kirkjubæ og vinnumaður hjá þeim var Bjarni Jónsson bróðir Jóns.
1884 voru þau þar enn og Guðbjörg Jónína var mætt, á fyrsta ári.
Þau voru húsfólk í Hólshúsi 1885 og við brottför til Utah 1887.
Jón fluttist með fjölskyldu sína frá Hólshúsi til Utah 1887.
Þau misstu son á leiðinni yfir hafið til Vesturheims. Það mun hafa verið Vilhjálmur Bjarni, en kallaður Jón í Our Pioneer Heritage.
Jón vann við D. & R. G. Railroad og síðar í Thistle.
Þau reistu sér múrsteinshús í Spanish Fork þar sem þau bjuggu síðan.
Jón lést 1930 og Vilborg 1943.

Kona Jóns, (3. nóvember 1882), var Vilborg Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1855, d. 17. desember 1943 í Utah.
Börn þeirra hér:
1. Helgi Guðjón Jónsson, f. 27. ágúst 1880, d. 20. júlí 1882 úr mislingum.
2. Guðbjörg Jónína Jónsdóttir, f. 30. mars 1884. Hún fluttist til Utah 1887.
3. Vilhjálmur Bjarni Jónsson, f. 22. desember 1886. Hann mun hafa dáið á leiðinni vestur.
Í Utah einuðust þau
4. William.
5. Rose.
6. Marinus.
7. Morgan.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Our Pioneer Heritage Vol. 7. Kate B. Carter. Daughters of Utah Pioneers. Salt Lake City 1964.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.