Jón Jónsson (Hlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. febrúar 2014 kl. 10:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. febrúar 2014 kl. 10:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson“


Jón.
Jón og fjölskylda.

Jón Jónsson, Hlíð, fæddist að Borgarhól í Landeyjum 21. október 1878. Jón fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1898 og var síðar sjómaður á opnu skipi. Hann lét byggja sjálfur mótorbát í Eyjum sem var Kapitóla og hafði hann formennsku á henni í tvö ár. Þá hættir hann sjómennsku en stundaði útgerð fram yfir 1940. Hann var í bæjarstjórn frá 1928-1930. Jón var mikið í félagsmálum og tók þátt í hinum ýmsu félagsstörfum í Vestmannaeyjum Jón lést 23. september 1954.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.