Jón Högnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2006 kl. 15:40 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2006 kl. 15:40 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Högnason var prestur að Ofanleiti frá 1811 til 1825. Hann var fæddur 3. september 1764 að Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum. Foreldrar hans voru Högni lögréttumaður Benediktsson að Skógum og kona hans Guðný Jónsdóttir, lögréttumanns í Selkoti, Ísleifssonar. Kona Jóns var Guðrún Hálfdánardóttir prests að Eyvindarhólum, ekkja séra Páls Magnússonar að Ofanleiti.

Nám og störf

Fór í Skálholtsskóla 1779 og var þar meðan skóli stóð, stúdent frá Gísla rektor Thorlacius 1786. Varð djákn á Breiðabólstað í Fljótshlíð 1789 og vígðist aðstoðarprestur séra Jóns Hálfdánarsonar að Eyvindarhólum 1790, Fékk Ólafsvelli 1797 og Ofanleiti 1811 og var þar prestur til æviloka. Hann var búsæll og vel efnaður og talinn hinn liprasti til prestsverka. Hann andaðist að Ofanleiti 1825.



Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.