Jón Hreinsson (Batavíu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. mars 2022 kl. 12:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. mars 2022 kl. 12:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Hreinsson formaður í Batavíu, síðar kaupmaður í Spanish Fork í Utah, fæddist 21. janúar 1858 í Brandshúsi og lést 7. október 1948 í Castel Gate í Utah.
Foreldrar hans voru Hreinn Jónsson sjómaður í Brandshúsi, f. 28. nóvember 1821 í Kúfhól í A-Landeyjum, drukknaði í mars 1863, og kona hans Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja í Brandshúsi, f. 17. ágúst 1830, d. 1. júlí 1886, síðar fyrri kona Guðmundar Ögmundssonar, síðar vitavarðar í Batavíu.

Jón var formaður á Blíðu um skeið. Hann fór um Danmörku til Vesturheims með fjölskyldu 1892, varð kaupmaður í Spanish Fork í Utah, var forstjóri ,,Verslunar- og Iðnaðar-félags Íslendinga í Spanish Fork“.

I. Kona Jóns, (17. október 1879), var Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja frá Ömpuhjalli, f. 19. október 1854, d. 26. apríl 1910 í Spanish Fork.
Börn þeirra hér:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Jónsdóttir, f. 15. janúar 1880 í Brandshúsi. Hún fór til Utah með foreldrum sínum, lést 17. apríl 1954. Maður hennar var Henry Franklin Hampson.
2. Jóhann Hreinn Jónsson, f. 18. júní 1882, d. 8. júlí 1882 úr mislingum.
3. Sigríður Guðmundína Jónsdóttir, f. 27. júlí 1883, d. 9. apríl 1885.
4. Jóhann Sigurmundur Jónsson, f. 21. ágúst 1887. Fór til Vesturheims með foreldrum sínum, lést 21. október 1964 í Murray í Utah.
5. Jón Kristinn Jónsson, f. 11. júlí 1891. Hann fór til Spanish Fork í Utah 1892, d. 30. nóvember 1934.

II. Kona Jóns, (26. júní 1914), var Elizabeth Ward, f. 31. október 1871 í Leichester á Englandi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • The Icelanders of Utah. La Nora Allsted.
  • Utah Icelandic Settlement (google).
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.