Jóhann Jónsson (Brekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. mars 2019 kl. 17:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. mars 2019 kl. 17:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Jónsson, Brekku, var fæddur 20. maí 1877 að Túni í Vestmannaeyjum og lést árið 1931. Foreldrar hans voru Jón Vigfússon og Guðrún Þórðardóttir. Hann var kvæntur Kristínu Árnadóttur og meðal barna þeirra var Engilbert Jóhannsson, Þorsteina í Þingholti og Karl verzlunarmaður.

Jóhann byrjaði ungur á sjónum, en formennsku hóf hann árið 1907 á Nansen sem hann átti einn. Á honum var hann formaður til ársins 1925.

Jóhann lærði auk þess trésmíði og vann við það eftir að hann hætti formennsku. Var hann talinn með bestu húsasmiðum Vestmannaeyja.



Heimildir

frekari umfjöllun

Jóhann Jónsson.

Jóhann Jónsson útgerðarmaður, formaður, húsasmiður á Brekku fæddist 20. maí 1876 í Túni og lést 13. janúar 1931.
Foreldrar hans voru Jón Vigfússon bóndi og smiður í Túni, f. 12. september 1836, d. 1. mars 1908, og kona hans Guðrún Þórðardóttir húsfreyja, f. 11. desember 1839, d. 27. ágúst 1890.

Jóhann var með foreldrum sínum í æsku. Hann var vinnumaður hjá ekklinum föður sínum 1894.
Hann fór til Reykjavíkur 1898. Þau Kristín giftu sig 1899, komu til Eyja frá Reykjavík á sama ári.
Jóhann eignaðist bátinn Nansen og var formaður á honum flest árin frá 1907-1925. Hann var og lærður húsasmiður og vann við iðnina í Eyjum.
Þau Kristín bjuggu í Túni við fæðingu andvana sveinbarns síns 1900, í Nöjsomhed 1901, vou komin á Brekku við fæðingu Guðrúnar Hrefnu 1902 og bjuggu þar síðan. Þau eignuðust 10 börn á Brekku.
Kristín lést 1926 og Jóhann 1931.

Kona Jóhanns, (1899 ), var Kristín Árnadóttir húsfreyja, f. 17. september 1878, d. 20. september 1926.
Börn þeirra voru:
1. Andvana fætt sveinbarn 7. nóvember 1900 í Túni.
2. Guðrún Hrefna Jóhannsdóttir, f. 11. apríl 1902 á Brekku, d. 14. desember 1945.
3. Þórsteina Jóhannsdóttir, f. 22. janúar 1904 á Brekku, d. 23. nóvember 1991.
4. Engilbert Jóhannsson, f. 26. júlí 1905 á Brekku, d. 8. janúar 1990.
5. Karl Jóhannsson, f. 29 nóvember 1906 á Brekku, d. 4. febrúar 1998.
6. Árný Svava Jóhannsdóttir, f. 23. maí 1908 á Brekku, d. 20. desember 1908.
7. Friðþjófur Jóhannsson, f. 21. maí 1910 á Brekku, d. 10. febrúar 1930.
8. Hulda Jóhannsdóttir, f. 19. október 1911 á Brekku, d. 17. september 1993.
9. Auróra Alda Jóhannsdóttir, f. 6. maí 1913, d. 11. maí 1995.
10. Bjarni Baldur Jóhannsson, f. 23. mars 1915.
11. Emma Jóna Jóhannsdóttir, f. 8. desember 1917.
12. Steingerður Jóhannsdóttir, f. 27. júlí 1919, d. 21. október 2005.

ctr
Nokkur Brekkusystkina.

Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.