Jessý Friðriksdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jessý Friðriksdóttir frá Hóli við Miðstræti 5a, húsfreyja fæddist þar 9. apríl 1934 og lést 27. júlí 2022.
Foreldrar hennar voru Friðrik Jesson frá Hóli, íþróttakennari, forstöðumaður Náttúrugripasafns Vestmannaeyja, f. 14. maí 1906, d. 3. september 1992, og kona hans Magnea Sjöberg húsfreyja, leikkona, starfsmaður Náttúrugripasafnsins, f. 16. júlí 1909, d. 16. janúar 1998.

Börn Magneu og Friðriks:
1. Ása Soffía Friðriksdóttir húsfreyja, f. 16. september 1930, d. 21. ágúst 2021. Maður hennar Gísli Ágúst Hjörleifsson, látinn.
2. Jessý Friðriksdóttir húsfreyja, f. 9. apríl 1934, d. 27. júlí 2022. Maður hennar Guðmundur Trausti Jakobsson.
3. Ágústa Þyri Friðriksdóttir húsfreyja, íþróttakennari, ritari, f. 27. október 1944. Maður hennar Kristján Egilsson.
4. Brynhildur Friðriksdóttir húsfreyja, myndlistarmaður, f. 2. september 1948. Maður hennar Ingi T. Björnsson.

Jessý var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1951.
Þau Trausti giftu sig 1954, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Heiðarvegi 24, síðan við Hólagötu 25.
Trausti lést 2011 og Jessý 2022.

I. Maður Jessýjar, (12. desember 1954), var Guðmundur Trausti Jakobsson frá Höfðahúsi, húsasmíðameistari, f. 5. febrúar 1933, d. 3. júní 2011.
Börn þeirra:
1. Magnea Traustadóttir húsfreyja, starfsmaður sjúkrahússins, f. 2. nóvember 1954. Maður hennar Friðbjörn Ólafur Valtýsson.
2. María Traustadóttir verkakona, f. 3. janúar 1961. Fyrrum maður hennar Ágúst Ármann Eiríksson.
3. Trausti Friðrik Traustason grafískur hönnuður, f. 21. september 1965. Barnsmóðir hans Jónína Ármannsdóttir. Sambúðarkona Lára Pálmarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.