Jenný Jóhannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jenný Jóhannsdóttir húsfreyja fæddist 25. mars 1958.
Foreldrar hennar voru Jóhann Ingvar Guðmundsson frá Sunnudal, flugvallarstjóri, f. 15. maí 1932, d. 23. janúar 2002, og kona hans Guðbjörg Kristjánsdóttir frá Sóleyjartungu við Brekastíg 21, húsfreyja, röntgenmyndari, f. 23. janúar 1936, d. 15. janúar 2013.

Jenný var með foreldrum sínum, í Sunnudal við Kirkjuveg 28 og við Búastaðabraut 9.
Hún varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1975.
Jenný vann við fiskiðnað og var sætavísa í kvikmyndahúsi.
Þau Sveinn giftu sig 1976, eignuðust fjögur börn. Þau búa við Litlagerði 7.

I. Maður Jennýjar, (25. desember 1976), er Sveinn Bernódus Sveinsson rafvirki, f. 21. apríl 1956.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Óli Sveinsson vélstjóri, f. 12. júní 1975. Kona hans Hrund Gísladóttir.
2. Jóhann Sveinn Sveinsson verkamaður, f. 9. maí 1978. Sambúðarkona hans Ragna Ragnarsdóttir.
3. Ársæll Sveinsson öryrki, f. 17. júlí 1992.
4. Júlíana Sveinsdóttir tækniteiknari, f. 24. ágúst 1997.


Heimildir

Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.

  • Íslendingabók.
  • Jenný.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.