„Jarðfræði“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Vestmannaeyjar liggja um 10 km suður undan Landeyjasandi. Eyjaþyrpingin samanstendur af 14 eyjum og auk þeirra eru um 30 drangar og sker. Eyjarnar eru sæbrattar og víðast hvar þaktar graslendi. Af þeim er Heimaey lang stærst eða um 13,4 km² og hún er sú eina sem er í byggð. Helstu og stærstu eyjarnar í kringum [[Heimaey]] eru [[Elliðaey]] og [[Bjarnarey]] norðaustur af Heimaey og til suðvesturs [[Suðurey]], [[Álsey]], [[Brandur]], [[Hellisey]], [[Súlnasker]] og [[Surtsey]].  
Vestmannaeyjar liggja um 10 km suður undan Landeyjasandi. Eyjaþyrpingin samanstendur af 14 eyjum og auk þeirra eru um 30 drangar og sker. Eyjarnar eru sæbrattar og víðast hvar þaktar graslendi. Af þeim er Heimaey langstærst eða um 13,4 km² og hún er sú eina sem er í byggð. Helstu og stærstu eyjarnar í kringum [[Heimaey]] eru [[Elliðaey]] og [[Bjarnarey]] norðaustur af Heimaey og til suðvesturs [[Suðurey]], [[Álsey]], [[Brandur]], [[Hellisey]], [[Súlnasker]] og [[Surtsey]].  


Menn hafa öldum saman velt fyrir sér uppruna Vestmannaeyja á jarðfræðilegum forsendum, og taldi Jónas Hallgrímsson til dæmis að eyjarnar hafi eitt sinn verið samfastar Eyjafjöllum, en að sjógangur og vindar hafi „nagað sundur tengslin“ við meginlandið:
Menn hafa öldum saman velt fyrir sér uppruna Vestmannaeyja á jarðfræðilegum forsendum, og taldi Jónas Hallgrímsson til dæmis að eyjarnar hafi eitt sinn verið samfastar Eyjafjöllum, en að sjógangur og vindar hafi „nagað sundur tengslin“ við meginlandið:


:„''Undirlag þeirra er allt móberg með blágrýtis- og stuðlagrjótskömbum, er ganga upp í gegnum það hingað og þangað, og sumsstaðar ofan á því nokkur lög af grásteini, sumstaðar líka, efst og yngst, eldhraun, komið úr Helgafelli [...] Má af öllu sjá, að það er hið sama jarðlag, sem liggur undir rótum Eyjafjallajökuls, og á saman við Seljalandsmúla og Fljótshlíðarhálsana; hefur það allt verið samfast til forna, fyrr en hafið braut það í sundur.''“
:„''Undirlag þeirra er allt móberg með blágrýtis- og stuðlagrjótskömbum, er ganga upp í gegnum það hingað og þangað, og sums staðar ofan á því nokkur lög af grásteini, sums staðar líka, efst og yngst, eldhraun, komið úr Helgafelli [...] Má af öllu sjá, að það er hið sama jarðlag, sem liggur undir rótum Eyjafjallajökuls, og á saman við Seljalandsmúla og Fljótshlíðarhálsana; hefur það allt verið samfast til forna, fyrr en hafið braut það í sundur.''“


Jarðvísindamenn okkar tíma hafa aðrar skoðannir á sama máli:
Jarðvísindamenn okkar tíma hafa aðrar skoðanir á sama máli:


Eyjarnar eru ungar á jarðsögulegan mælikvarða og hafa allar myndast í eldgosum, þær elstu fyrir u.þ.b. 12 þúsund árum. Flestar eyjarnar eru gíglaga móbergsstapar og á sumum þeirra eru gjallgígar.  
Eyjarnar eru ungar á jarðsögulegan mælikvarða og hafa allar myndast í eldgosum, þær elstu fyrir u.þ.b. 12 þúsund árum. Flestar eyjarnar eru gíglaga móbergsstapar og á sumum þeirra eru gjallgígar.  
Lína 14: Lína 14:
''Sjá aðalgrein: [[Heimaey]]''
''Sjá aðalgrein: [[Heimaey]]''


Heimaey er eina eyjan í Vestmannaeyjaklasanum sem hefur myndast í fleiri en einu eldgosi. Mestöll eyjan er úr móbergi, en einnig er þó nokkuð af vikri, bólstrabergi og öðrum bergtegundum, sérstaklega í kringum nýja hraunið. Mikið er af holufyllingum á borð við kvartz á suðurhluta eyjunnar nálægt [[ræningjatangi|ræningjatanga]]. Um það bil 1/3 af eyjunni er þakin fjalllendi.
Heimaey er eina eyjan í Vestmannaeyjaklasanum sem hefur myndast í fleiri en einu eldgosi. Mestöll eyjan er úr móbergi, en einnig er þó nokkuð af vikri, bólstrabergi og öðrum bergtegundum, sérstaklega í kringum nýja hraunið. Mikið er af holufyllingum á borð við kvartz á suðurhluta eyjunnar nálægt [[Ræningjatangi|Ræningjatanga]]. Um það bil 1/3 af eyjunni er fjalllendi.


=== Norðurklettarnir ===
=== Norðurklettarnir ===
Norðurklettarnir eru elsti partur Heimaeyjar, en þær eru taldar um 10-14 þúsund ára gamlar. [[Heimaklettur]], [[Miðklettur]], [[Ystiklettur]] og [[Klif]]ið hafa myndast í gosum undir jökli en þeir eru misgamlir móbergsstapar, en [[Dalfjall]] og þá [[Blátindur]] ásamt [[Moldi|Molda]] mynduðust við eldgos, sem hefur verið að einhverju leyti undir jökli, þar sem [[Herjólfsdalur]] var megineldstöðin.  
Norðurklettarnir eru elsti hluti Heimaeyjar, en sá hluti er talinn um 10-14 þúsund ára gamall. [[Heimaklettur]], [[Miðklettur]], [[Ystiklettur]] og [[Klif]]ið hafa myndast í gosum undir jökli og eru misgamlir móbergsstapar, en [[Dalfjall]] og þá [[Blátindur]] ásamt [[Moldi|Molda]] mynduðust við eldgos, sem hefur verið að einhverju leyti undir jökli, þar sem [[Herjólfsdalur]] var megineldstöðin.  


=== Suðurklettarnir ===
=== Suðurklettarnir ===
[[Stórhöfði]], líkt og Heimaklettur, hefur myndast við gos undir jökli, enda er einnig um móbergsstapa að ræða þar. Stórhöfði er talinn vera um 10.000 ára gamall.
[[Stórhöfði]], líkt og Heimaklettur, hefur myndast við gos undir jökli, enda er einnig um móbergsstapa að ræða þar. Stórhöfði er talinn vera um 10.000 ára gamall.


[[Kervíkurfjall]], [[Sæfjall]] og [[Litli höfði]] hafa myndast í jarðeldum með [[Stakkabót]] sem megineldstöð, en skerin [[Litli Stakkur]] og [[Stóri Stakkur]] hafa myndast í sama gosi. Þá hefur fláin milli [[Breiðabakki|Breiðabakka]] og Stórhöfða, þar sem [[Brimurð]] og [[Klauf]] eru myndast við söfnun jarðefna þar á milli, mjög líkt og [[Þrælaeiði]]. [[Ræningjatangi]] hefur þó myndast í sama eldgosinu og Litli Höfði. Bergið frá Sæfjalli suður að [[Garðsendi|Garðsenda]] er talið um 5.000 ára gamalt.
[[Kervíkurfjall]], [[Sæfjall]] og [[Litli höfði]] hafa myndast í jarðeldum með [[Stakkabót]] sem megineldstöð, en skerin [[Litli Stakkur]] og [[Stóri Stakkur]] hafa myndast í sama gosi. Þá hefur fláin milli [[Breiðabakki|Breiðabakka]] og Stórhöfða, þar sem [[Brimurð]] og [[Klauf]] eru, myndast við söfnun jarðefna þar á milli, mjög líkt og [[Þrælaeiði]]. [[Ræningjatangi]] hefur þó myndast í sama eldgosinu og Litli Höfði. Bergið frá Sæfjalli suður að [[Garðsendi|Garðsenda]] er talið um 5.000 ára gamalt.


=== Helgafell ===
=== Helgafell ===
[[Helgafell]] er næstyngsta eldfjallið á Heimaey, en hún er talin vera um 5.000 ára gömul, ögn yngra þó en Sæfjall. Helgafellsgosið tengdi saman norðurklettana og suðurklettana og gerði úr þeim eina heildstæða eyju. Hægt er að áætla að í gosinu hafi eyjan stækkað um allt að 7km².
[[Helgafell]] er næstyngsta eldfjallið á Heimaey, talið vera um 5.000 ára gamalt, ögn yngra þó en Sæfjall. Helgafellsgosið tengdi saman norðurklettana og suðurklettana og gerði úr þeim eina heildstæða eyju. Hægt er að áætla að í gosinu hafi eyjan stækkað um allt að 7 km².


=== Heimaeyjargosið ===
=== Heimaeyjargosið ===
''Sjá aðalgrein: [[Heimaeyjargosið]]''
''Sjá aðalgrein: [[Heimaeyjargosið]]''


Eldgos hófst á Heimaey þann 23. janúar árið 1973 og stóð fram til 3. júlí sama ár. Á þeim tíma eyðilagðist og/eða skemmdist u.þ.b. 440 hús, en um þriðjungur húsanna á eynni fóru undir hraun.  
Eldgos hófst á Heimaey þann 23. janúar árið 1973 og stóð fram til 3. júlí sama ár. Á þeim tíma eyðilögðust og/eða skemmdust u.þ.b. 440 hús, en um þriðjungur húsa á eynni fór undir hraun.  


Í upphafi gossins opnaðist jarðsprunga frá suð-suðvestri til norð-norðausturs um 300 metrum austur af Kirkjubæ, og var sú sprunga um 2,3km löng, en hún lokaðist að stórum hluta á fyrstu dögum gossins og einangraðist við megineldstöð.   
Í upphafi gossins opnaðist jarðsprunga frá suð-suðvestri til norð-norðausturs um 300 metrum austur af Kirkjubæ, og var sú sprunga um 2,3 km löng, en hún lokaðist að stórum hluta á fyrstu dögum gossins og einangraðist við megineldstöð.   


Eftir stóð eldfjallið [[Eldfell]], sem margir Vestmannaeyingar vildu kalla Kirkjufell, rétt norðaustan [[Helgafell]]s. Frá því stendur [[Eldfellshraun]], sem teygir sig frá Skarfatanga í suðri að Skansinum í norðri, og stækkaði [[Heimaey]] um eina 3 ferkílómetra.  
Eftir stóð eldfjallið [[Eldfell]], sem margir Vestmannaeyingar vildu kalla Kirkjufell, rétt norðaustan [[Helgafell]]s. Frá því stendur [[Eldfellshraun]], sem teygir sig frá Skarfatanga í suðri að Skansinum í norðri, og stækkaði [[Heimaey]] við þetta um eina 3 ferkílómetra.  


Eldfellshraun er basískt apalhraun að mestu, með nokkrum helluhraunsblettum.  
Eldfellshraun er basískt apalhraun að mestu, með nokkrum helluhraunsblettum.  


== Úteyjar ==
== Úteyjar ==
Úteyjarnar urðu allar til í eldgosum undir jökli á síðustu ísöld, að undanskildri [[Surtsey]]. Margar eyjanna, til dæmis Bjarnarey, hafa mjög augljósa gjallgíga, en aðrar eyjur eru ekki jafn áberandi að uppruna, til dæmis er gígurinn sem myndaði [[Álfsey]] undir sjávarmáli.
Úteyjarnar urðu allar til í eldgosum undir jökli á síðustu ísöld, að undanskilinni [[Surtsey]]. Margar eyjanna, til dæmis Bjarnarey, hafa mjög augljósa gjallgíga, en aðrar eyjar eru ekki jafn áberandi að uppruna, til dæmis er gígurinn sem myndaði [[Álsey]] undir sjávarmáli.


=== Surtsey ===
=== Surtsey ===
''Sjá aðalgrein: [[Surtseyjargosið]]''
''Sjá aðalgrein: [[Surtseyjargosið]]''


Surtsey varð til í miklu neðansjávargosi sem hófst árið 1963 og lauk 1967, sem mun vera lengsta sögulega eldgos á Íslandi.  Við upphaf gossins voru tvær eyjur sem mynduðust, og fengu þær nöfnin [[Syrtlingur]] og [[Jólnir]]. Jólnir kom upp úr sjó rétt fyrir Þorláksmessu, og stóð fram yfir jólin 1963. Syrtlingur stóð mun lengur, en leifar þessarra eyja mynduðu Surtsey seinna meir.
Surtsey varð til í miklu neðansjávargosi sem hófst árið 1963 og lauk 1967, og mun vera lengsta sögulega eldgos á Íslandi.  Við upphaf gossins voru tvær eyjar sem mynduðust og fengu þær nöfnin [[Syrtlingur]] og [[Jólnir]]. Jólnir kom upp úr sjó rétt fyrir Þorláksmessu, og stóð fram yfir jólin 1963. Syrtlingur stóð mun lengur en leifar þessarra eyja mynduðu Surtsey seinna meir.


Strax að loknu gosinu var Surtsey friðuð, þar sem þetta var í fyrsta skiptið á sögulegum tíma sem ný eyja hafði myndast, og voru jarðfræðingar jafnt sem líffræðingar forvitnir um þróun lífríkisins á eyjunni og eyjunnar sjálfrar. Strax á fyrstu árunum eftir gosið fóru ýmsar lífverur að taka sér bólfestu þarna.
Strax að loknu gosinu var Surtsey friðuð, þar sem þetta var í fyrsta skiptið á sögulegum tíma sem ný eyja hafði myndast, og voru jarðfræðingar jafnt sem líffræðingar forvitnir um þróun lífríkisins á eyjunni og eyjunnar sjálfrar. Strax á fyrstu árunum eftir gosið fóru ýmsar lífverur að taka sér bólfestu þarna.


[[Flokkur:Um Vestmannaeyjar]]
[[Flokkur:Um Vestmannaeyjar]]
Lína 52: Lína 52:
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Þorleifur Einarsson, Gosið á Heimaey; Heimskringla, Reykjavík, 1974, ISBN 0-0003-057098
* Þorleifur Einarsson, Gosið á Heimaey; Heimskringla, Reykjavík, 1974, ISBN 0-0003-057098
* Ferðafélag Íslands, Árbót Ferðafélags Íslands; Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík, 1948, ISBN 0-0003-019302
* Ferðafélag Íslands, Árbók Ferðafélags Íslands; Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík, 1948, ISBN 0-0003-019302
}}
}}

Útgáfa síðunnar 4. nóvember 2005 kl. 11:43

Vestmannaeyjar liggja um 10 km suður undan Landeyjasandi. Eyjaþyrpingin samanstendur af 14 eyjum og auk þeirra eru um 30 drangar og sker. Eyjarnar eru sæbrattar og víðast hvar þaktar graslendi. Af þeim er Heimaey langstærst eða um 13,4 km² og hún er sú eina sem er í byggð. Helstu og stærstu eyjarnar í kringum Heimaey eru Elliðaey og Bjarnarey norðaustur af Heimaey og til suðvesturs Suðurey, Álsey, Brandur, Hellisey, Súlnasker og Surtsey.

Menn hafa öldum saman velt fyrir sér uppruna Vestmannaeyja á jarðfræðilegum forsendum, og taldi Jónas Hallgrímsson til dæmis að eyjarnar hafi eitt sinn verið samfastar Eyjafjöllum, en að sjógangur og vindar hafi „nagað sundur tengslin“ við meginlandið:

Undirlag þeirra er allt móberg með blágrýtis- og stuðlagrjótskömbum, er ganga upp í gegnum það hingað og þangað, og sums staðar ofan á því nokkur lög af grásteini, sums staðar líka, efst og yngst, eldhraun, komið úr Helgafelli [...] Má af öllu sjá, að það er hið sama jarðlag, sem liggur undir rótum Eyjafjallajökuls, og á saman við Seljalandsmúla og Fljótshlíðarhálsana; hefur það allt verið samfast til forna, fyrr en hafið braut það í sundur.

Jarðvísindamenn okkar tíma hafa aðrar skoðanir á sama máli:

Eyjarnar eru ungar á jarðsögulegan mælikvarða og hafa allar myndast í eldgosum, þær elstu fyrir u.þ.b. 12 þúsund árum. Flestar eyjarnar eru gíglaga móbergsstapar og á sumum þeirra eru gjallgígar.

Vestmannaeyjar eru á umfangsmiklu eldgosasvæði sem er um 38 km langt og 30 km breitt með 70-80 eldstöðvum eða leifum þeirra.

Heimaey

Sjá aðalgrein: Heimaey

Heimaey er eina eyjan í Vestmannaeyjaklasanum sem hefur myndast í fleiri en einu eldgosi. Mestöll eyjan er úr móbergi, en einnig er þó nokkuð af vikri, bólstrabergi og öðrum bergtegundum, sérstaklega í kringum nýja hraunið. Mikið er af holufyllingum á borð við kvartz á suðurhluta eyjunnar nálægt Ræningjatanga. Um það bil 1/3 af eyjunni er fjalllendi.

Norðurklettarnir

Norðurklettarnir eru elsti hluti Heimaeyjar, en sá hluti er talinn um 10-14 þúsund ára gamall. Heimaklettur, Miðklettur, Ystiklettur og Klifið hafa myndast í gosum undir jökli og eru misgamlir móbergsstapar, en Dalfjall og þá Blátindur ásamt Molda mynduðust við eldgos, sem hefur verið að einhverju leyti undir jökli, þar sem Herjólfsdalur var megineldstöðin.

Suðurklettarnir

Stórhöfði, líkt og Heimaklettur, hefur myndast við gos undir jökli, enda er einnig um móbergsstapa að ræða þar. Stórhöfði er talinn vera um 10.000 ára gamall.

Kervíkurfjall, Sæfjall og Litli höfði hafa myndast í jarðeldum með Stakkabót sem megineldstöð, en skerin Litli Stakkur og Stóri Stakkur hafa myndast í sama gosi. Þá hefur fláin milli Breiðabakka og Stórhöfða, þar sem Brimurð og Klauf eru, myndast við söfnun jarðefna þar á milli, mjög líkt og Þrælaeiði. Ræningjatangi hefur þó myndast í sama eldgosinu og Litli Höfði. Bergið frá Sæfjalli suður að Garðsenda er talið um 5.000 ára gamalt.

Helgafell

Helgafell er næstyngsta eldfjallið á Heimaey, talið vera um 5.000 ára gamalt, ögn yngra þó en Sæfjall. Helgafellsgosið tengdi saman norðurklettana og suðurklettana og gerði úr þeim eina heildstæða eyju. Hægt er að áætla að í gosinu hafi eyjan stækkað um allt að 7 km².

Heimaeyjargosið

Sjá aðalgrein: Heimaeyjargosið

Eldgos hófst á Heimaey þann 23. janúar árið 1973 og stóð fram til 3. júlí sama ár. Á þeim tíma eyðilögðust og/eða skemmdust u.þ.b. 440 hús, en um þriðjungur húsa á eynni fór undir hraun.

Í upphafi gossins opnaðist jarðsprunga frá suð-suðvestri til norð-norðausturs um 300 metrum austur af Kirkjubæ, og var sú sprunga um 2,3 km löng, en hún lokaðist að stórum hluta á fyrstu dögum gossins og einangraðist við megineldstöð.

Eftir stóð eldfjallið Eldfell, sem margir Vestmannaeyingar vildu kalla Kirkjufell, rétt norðaustan Helgafells. Frá því stendur Eldfellshraun, sem teygir sig frá Skarfatanga í suðri að Skansinum í norðri, og stækkaði Heimaey við þetta um eina 3 ferkílómetra.

Eldfellshraun er basískt apalhraun að mestu, með nokkrum helluhraunsblettum.

Úteyjar

Úteyjarnar urðu allar til í eldgosum undir jökli á síðustu ísöld, að undanskilinni Surtsey. Margar eyjanna, til dæmis Bjarnarey, hafa mjög augljósa gjallgíga, en aðrar eyjar eru ekki jafn áberandi að uppruna, til dæmis er gígurinn sem myndaði Álsey undir sjávarmáli.

Surtsey

Sjá aðalgrein: Surtseyjargosið

Surtsey varð til í miklu neðansjávargosi sem hófst árið 1963 og lauk 1967, og mun vera lengsta sögulega eldgos á Íslandi. Við upphaf gossins voru tvær eyjar sem mynduðust og fengu þær nöfnin Syrtlingur og Jólnir. Jólnir kom upp úr sjó rétt fyrir Þorláksmessu, og stóð fram yfir jólin 1963. Syrtlingur stóð mun lengur en leifar þessarra eyja mynduðu Surtsey seinna meir.

Strax að loknu gosinu var Surtsey friðuð, þar sem þetta var í fyrsta skiptið á sögulegum tíma sem ný eyja hafði myndast, og voru jarðfræðingar jafnt sem líffræðingar forvitnir um þróun lífríkisins á eyjunni og eyjunnar sjálfrar. Strax á fyrstu árunum eftir gosið fóru ýmsar lífverur að taka sér bólfestu þarna.


Heimildir

  • Þorleifur Einarsson, Gosið á Heimaey; Heimskringla, Reykjavík, 1974, ISBN 0-0003-057098
  • Ferðafélag Íslands, Árbók Ferðafélags Íslands; Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík, 1948, ISBN 0-0003-019302