Jakarnir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 09:54 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 09:54 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Lagfærði texta)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hokkífélagið Jakarnir var stofnað 24. febrúar 2003 af nokkrum peyjum sem höfðu mikinn áhuga á street-hockey (götuhokkí). Sá sem fór fremstur i flokki þeirra var Sigurður Ingi Einisson. Þeir höfðu mikið verið að leika sér í þessu á plani Íþróttamiðstöðvarinnar um nokkurt skeið áður en þeir ákváðu að stofna Jakana. Fyrsta verkefni sem þeir fóru í var að leita sér að einhverjum til að styrkja þá og svo að fjárfesta í mörkum til að geta spilað almennilega. Sjoppan Ísjakinn var reiðubúin til að styrkja félagið. Þaðan er nafnið dregið. Mörkin voru svo keypt og notuð til að byrja með á plani Íþróttamiðstöðvarinnar. Um veturinn fengu þeir að vera með þau inni og æfa í gamla salnum. Þegar veturinn skall á keyptu strákanir sér sérstakan búnað til að vera í og einnig treyjur til að spila í. Áhuginn var orðinn gríðarlegur og voru margir sem æfðu þennan vetur með Jökunum. Tíminn sem félagið starfaði var þó ekki langur eða um eitt og hálft ár. Að sögn Sigurðar Inga stefna þeir að því að hefjast aftur handa ef áhugi verður fyrir því.