Júlíus Ingibergsson (Hjálmholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2019 kl. 21:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2019 kl. 21:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Júlíus Ingibergsson (Hjálmolti) á Júlíus Ingibergsson (Hjálmholti))
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Júlíus

Júlíus Ingibergsson, Hjálmholti, fæddist í Vestmannaeyjum 17. júlí 1915 og lést 11. ágúst 2000. Foreldrar hans voru Ingibergur Hannesson og Guðjóna Pálsdóttir. Kona Júlíusar var Elma Jónsdóttir og eignuðust þau tvö börn, Fanneyju og Júlíus Rafn.

Árið 1935 byrjaði Júlíus formennsku á Sæbjörgu en eftir það var hann með fleiri báta, meðal annars Karl, Vestra og Ingólf. Árið 1946 keypti hann, ásamt bróður sínum, Reyni I og síðar Reyni II þar sem hann var vélamaður.

Loftur Guðmundsson samdi formannsvísu um Júlíus árið 1944:

Júlíus Vestra að veiðiför
vel til afla reiðir
með þreki og festu, fár á svör
fæst ei um allra leiðir.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1994.