Júlíana Valgerður Símonardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. apríl 2015 kl. 17:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. apríl 2015 kl. 17:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Júlíana Valgerður Símonardóttir“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Júlíana Valgerður Símonardóttir húsfreyja á Streiti í Breiðdal fæddist 29. júní 1872 í Litlabæ og lést 16. febrúar 1948 í Hrísey.
Foreldrar hennar voru Símon Símonarson vinnumaður í Litlabæ, f. 1841 í Jórvík í Álftaveri, d. 19. mars 1872 í Eyjum, og sambýliskona hans Guðný Einarsdóttir vinnukona, ekkja í Litlabæ, f. 21. mars 1828 í Hraunkoti í Landbroti, d. 13. maí 1923 á Streiti í Breiðdal.

Júlíana Valgerður var systurdóttir Ólafs Einarssonar í Litlakoti.

Júlíana Valgerður fluttist með móður sinni til Meðallands 1873 og var með henni á Undirhrauni þar 1873-1874, í Klauf þar 1874-1876, hjá henni í Háu-Kotey 1876-1884, er þær fóru í A-Skaftafellssýslu.
Þær fluttust að Hólminum í Einholtssókn á Mýrum í A-Skaft., fluttust þaðan að Krosshjáleigu í Berufirði 1887.
Júlíana Valgerður kom frá Krosshjáleigu að Streiti 1889, var vinnukona þar, giftist Magnúsi 1894. Hann hafði farið til Vesturheims 1883, en kom frá Winnipeg 1892 og gerðist bóndi á Streiti.

Maður Júlíönu Valgerðar, (13. júlí 1894), var Magnús Þorvarðarson bóndi á Streiti í Breiðdal, f. 21. september 1855, d. 21. júlí 1930.
Börn þeirra:
1. Margrét Magnúsdóttir, f. 26. ágúst 1893, sögð hafa drukknað í mógröf um tvítugt.
2. Halldóra Magnúsdóttir, f. 24. desember 1894, dó óg. og barnlaus.
3. Þórdís Magnúsdóttir kaupkona í Hrísey, bjó síðast á Akureyri, f. 28. febrúar 1896, d. 4. apríl 1983.
4. Sveinbjörg Magnúsdóttir, f. 22. september 1897, d. 13. júlí 1899.
5. Þóra Magnúsdóttir húsfreyja í Hrísey og á Akureyri, f. 23. júlí 1901, d. 22. ágúst 1989.
6. Sveinbjörg Júlíana Magnúsdóttir húsfreyja á Flögu í Skriðdal, f. 25. desember 1904, d. 14. september 1972.
7. Rannveig Magnúsdóttir vinnukona á Árskógsströnd, f. 24. desember 1906, d. 1. júlí 1995.
8. Guðný Birna Magnúsdóttir í Hrísey, f. 21. mars 1909, d. 3. maí 1932.
9. Einar Már Magnússon Hrísey, f. 14. febrúar 1911, d. 17. desember 1933.
10. Guðný Magnúsdóttir á Streiti, f. 10. september 1912, d. 20. febrúar 2003.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.