Júlíana Kristín Kristmannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. desember 2019 kl. 10:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. desember 2019 kl. 10:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Júlíana Kristín Kristmannsdóttir.

Júlíana Kristín Kristmannsdóttir frá Steinholti, síðar húsfreyja í Reykjavík fæddist 18. júlí 1910 í Steinholti og lést. 10. janúar 1990.
Foreldrar hennar voru Kristmann Agnar Þorkelsson yfirfiskimatsmaður, f. 23. júlí 1883 á Seyðisfirði, d. 22. janúar 1972 í Reyjkavík og kona hans Jónína Jónsdóttir húsfreyja, f. 11. ágúst 1885 í Mandal, d. 3. mars 1957 í Reykjavík.

Systkini Júlíönu Kristínar voru
1. Ingi Kristmanns bankagjaldkeri, bankaritari, f. 13. nóvember 1905, d. 31. desember 1974.
2. Rósa Kristmannsdóttir, f. 15. apríl 1908, skírð 5. júní 1908. Hún var ekki með foreldrum sínum í Steinholti í lok árs 1908 né síðar, - finnst ekki lífs né liðin.
3. Karl Kristmanns kaupmaður, f. 21. nóvember 1911, d. 19. janúar 1958.
4. Magnea Þórey Kristmannsdóttir húsfreyja, f. 11. febrúar 1915, d. 6. ágúst 1955.
5. Huld Kristmannsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. febrúar 1917, d. 10. maí 2010.
6. Alexander Kristmannsson járnsmiður í Reykjavík, f. 17. apríl 1919, d. 4. ágúst 1956.
7. Sigurveig Þóra Kristmannsdóttir húsfreyja, skrifstofukona í Reykjavík, f. 7. janúar 1921, d. 13. apríl 1997.
8. Ágúst Kristmannsson, f. 11. ágúst 1922, d. 28. júlí 1928.

Júlíana var með foreldrum sínum í æsku. Hún giftist Kristjáni 1930, bjó í Steinholti með Kristjáni og börnum 1930-1934, en fluttist þá alfarin til Reykjavíkur. Hún bjó þar síðan.

Maður hennar, (24. maí 1930), var Kristján Magnússon málarameistari, f. 24. febrúar 1909, d. 16. nóvember 1979.
Börn þeirra hér:
1. Jónína Kristín Kristjánsdóttir, f. 6. nóvember 1930.
2. Magnea Kristólína Kristjánsdóttir, f. 20. mars 1932.
3. Kristján Þór Kristjánsson, f. 23. janúar 1936, d. 17. júní 1936.
4. Kristján Þór Kristjánsson, f. 10. desember 1941, d. 29. mars 2017.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.