Júlíana Guðrún Brynjólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. september 2015 kl. 14:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. september 2015 kl. 14:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Júlíana Guðrún Brynjólfsdóttir húsfreyja frá Norðurgarði fæddist 9. júlí 1863 og lést líklega 24. apríl 1949.
Foreldrar hennar voru Brynjólfur Halldórsson bóndi, f. 11. nóvember 1825 í Skíðbakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 4. júní 1874, og kona hans Jórunn Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 4. desember 1828 í Norðurgarði, d. 14. febrúar 1879.

Systkini hennar, sem komust upp voru:
1. Margrét, f. 20. október 1852, d. 31. júlí 1937, kona Hannesar lóðs á Miðhúsum.
2. Rannveig húsfreyja í Reykjavík f. 27. september 1857, d. 5. október 1922.
3. Þórður, f. 16. júní 1862. Líklega sá, sem fór til Vesturheims frá Akureyri 1887, trésmiður 24 ára.
4. Júlíana Guðrún, f. 9. júlí 1863. Hún bjó á Akureyri 1930.
5. Magnús, f. 17. desember 1864. Hann fór til Vesturheims, líklega 1887 og líklega sá, sem var 22 ára skósmiður og ætlaði til Milwaukee.
6. Guðbjörg, f. 2. apríl 1867, d. 25. apríl 1944, búsett í Reykjavík.
7. Halldór sjómaður, varð blindur, f. 12. janúar 1873, d. 28. janúar 1948. Hann kvæntist Kristínu Vigfúsdóttur af Rangárvöllum, f. 2. september 1865, d. 5. janúar 1836. Þau bjuggu í Sjávargötu, síðar í Hafnarfirði.

Júlíana Guðrún var með foreldrum sínum, uns faðir hennar lést 1874 og með móður sinni til 1879, en þá lést hún.
Hún var vinnukona í Jónshús 1880-1882, fluttist þaðan til Reykjavíkur 1882.
Júlíana Guðrún fluttist til Akureyrar, giftist Guðmundi 1887, var 27 ára húsfreyja í Prentsmiðjunni á Oddeyri á Akureyri 1890, (skráð fædd í Skútustaðasókn), gift Guðmundi Guðmundssyni prentara. Þau bjuggu á Glerárgötu þar 1901, (nú skráð fædd í Eyjum). Með þeim var sonur bóndans Kristján Guðmundsson 31 árs, innanbúðarmaður hjá Gránufélaginu, síðar bóksali.
Guðmundur lést 1908.
Júlíana Guðrún var ekkja og ráðskona hjá Kristjáni stjúpsyni sínum á Glerárgötu 1 á Akureyri 1910 og enn 1930.

I. Maður Júlíönu Guðrúnar, (1887), var Guðmundur Guðmundsson prentari og bóksali á Akureyri, f. 6. mars 1834, d. 3. september 1908.
Þau voru barnlaus, en Júlíana var stjúpmóðir
1. Kristjáns Ágúst Guðmundssonar verslunarþjóns, síðar bóksala, f. 26. ágúst 1871, d. 4. desember 1933.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.